Draumalandið komið út á ensku - Björk skrifar formála 18. ágúst 2008 15:01 Kápan á bók Andra Snæs, Dreamland - A Self-Help Guide For á Frightened Nation.
Draumalandið, bók Andra Snæs Magnasonar, hefur verið gefin út á ensku af forlaginu Citizen Press. Nefnist hún"Dreamland - A Self-Help Guide For a Frightened Nation." Björk ritar formála. Enska útgáfan kom út hér á landi sama dag og Náttúru tónleikarnir voru haldnir í Laugardal. Hún er nú til sölu í bókabúðum um land allt. Bókin verður kynnt í Bretlandi í haust, og útgáfunni fylgt eftir með fyrirlestraröð Andra Snæs, bæði á Íslandi og í Bretlandi. Fyrsti fyrirlesturinn var 16. ágúst á The Green Man Festival í Wales. Þar var fullt hús og viðtökur áhorfenda mjög góðar. Draumalandið var ein umtalaðasta bókin á Íslandi þegar hún kom út fyrir tveimur árum. Það er augljóst af viðbrögðum við ensku útgáfunni, að hún vekur athygli enda er umræðuefnið ekki sér-íslenskt. Gagnrýnendur bókarinnar eru flestir sammála um að umræðan um hvernig eigi að umgangast náttúruna er, og á að vera ofarlega á dagskrá og að vandi Íslands er í hnotskurn, vandi heimsins. Eins og íslenskir lesendur vita hefur Andra Snæ tekist að vekja áhuga á þessu viðfangsefni samtímans af einstakri hugmyndaauðgi og áunnið sér virðingu samherja og mótherja fyrir vel skrifaðan teksta og vönduð vinnubrögð. Þessi bók á því erindi á heimsmarkað, þar sem hún skilgreinir umræðuna að mörgu leyti upp á nýtt. Hún getur haft gríðarleg áhrif á hugarfar fólks að mati gagnrýnenda. Ýmsir fjölmiðlar hafa þegar tekið bókina til umfjöllunar og ljúka þeir upp einum rómi um að hún sé athyglisverð og vel skrifuð. Times Literary Supplement sagði um bókina að Andri Snær tækist á við alheimsvandamál á stórskemmtilegan hátt og út frá þjóðlegu, íslensku sjónarhorni.Draumalandið minnir á texta Naomi Klein (No Logo, Shock Doctrine) og mikilsverðar vangaveltur um vinnubrögð kapítalista, um sjálfbærni og um það hvaða leið við viljum feta inní nýja öld. New York blaðið, The Onion, sem þekkt er meðal ungs fólks um allan heim, segir að einlægni og hógværð Andra sé sjarmerandi og gaman sé að rökræðum hans við sjálfan sig og von hans um að hægt sé að draga úr mengun án þess að líf okkar þurfi að verða fátækara. "Ísland vegur og metur", segir Dagens Nyheter. "Eftirspurn eftir bók Andra Snæs Magnasonar, gefur til kynna að, að stöðugt fleiri átta sig á því að það eru til valkostir við hina gömlu aðferð við baráttu gegn fátækt: Að misnota náttúruna." Blaðið bendir á að orkuvandi heimsins, geti orðið til þess, þvert á spár, að skapa fjölbreyttari og betri kosti við atvinnusköpun og orkunýtingu. Í heilsíðuumfjöllun um Draumalandið, þann 22. júlí síðastliðinn, segir Frankfurter Allgemeine Zeitung: "Það góða við Draumalandið er, að bókin reynir aldrei að troða neinu ofan í kokið á lesandanum, heldur er textinn alvörugefinn og í bland sjálfhæðinn, blandar inní frásögnina sögum úr hvunndeginum - en auðvitað eru það málin sem snúa að öllum heiminum, sem gera bókina áhugaverða fyrir útlendinga. Hversu miklu skal fórna til að skapa örfá störf? Hvað er maður tilbúinn til að beygja sig fyrir illskiljanlegum útskýringum risafyrirtækja og fjölmiðla og hversu mikið frumkvæði einstaklinga þarf til að tryggja frelsi og sjálfstæði?."
Mest lesið „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Lífið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Lífið Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Lífið „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Bíó og sjónvarp Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Lífið Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls Lífið Hvað er það versta sem þú hefur gert? Gagnrýni Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Lífið „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Lífið Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Lífið Fleiri fréttir Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Sjá meira