Útspil ríkisstjórnarinnar hugsanlega klárt um helgina 15. febrúar 2008 14:24 MYND/Stöð 2
Geir H. Haarde forsætisráðherra segir að útspil ríkisstjórnarinnar í tengslum við kjarsamninga á almennum vinnumarkaði líti dagsins ljós í fyrsta lagi um helgina en gæti allt eins dregist fram yfir helgi. Þetta kom fram í máli hans eftir fund ríkisstjórnarinnar með forsvarsmönnum verkalýðshreyfingarinnar og Samtaka atvinnulífsins í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í dag. Þar viðruðu aðilar vinnumarkaðarins sínar hugmyndir um aðkomu ríkisstjórnarinnar að málum. Ríkisstjórnin fundaði fyrst með ASÍ og sagði Grétar Þorsteinsson, forseti sambandsins, eftir fundinn að ASÍ hefði ekki fengið nein ákveðin svör frá ríkisstjórinni um hennar aðkomu að samningum. Hins vegar yrði farið í praktíska vinnu við að fara yfir tillögur ASÍ í þessum efnum. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, sagði í samtali við Vísi eftir fundinn með ríkisstjórninni að samtökin hafi farið yfir þau atriði sem þau hefðu lagt upp við ríkisstjórnina áður. Þau sneru að starfsskilyrðum atvinnulífsins og aðgerðum til þess að ná niður verðbólgu. „Seðlabankinn hefur skellt skollaeyrum við öllu sem heyrist og sést í samfélaginu og ríkisstjórnin þarf að grípa í taumana," sagði Vilhjálmur og vísaði til þess að milli ríkisstjórnarinnar og Seðlabankans sé í gildi samkomulag um verðbólgumarkmið bankans. Vilhjálmur telur að endurskoða þurfi það samkomulag. Varðandi framvindu kjarasamninga sagði Vilhjálmur að hann reiknaði með að ASÍ og SA myndu klára efnisatriði í samningum í kvöld. Þá væri skjalafrágangur eftir en óvíst væri hvað hann tæki langan tíma. Það myndi þó að líkindum klárast um helgina og því ljóst að ríkisstjórnin hefði ekki langan tíma. Fram kom í máli forseta ASÍ fyrr í dag að ekki yrði skrifað undir samninga fyrr en útspil ríkisstjórnarinnar í tengslum við kjarasamninga lægi fyrir.
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Ekki í fyrsta sinn sem Trump stingur upp á Ísland yrði hluti af Bandaríkjunum „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft Sjá meira