Telur Óskar hafa svikið samkomulag minnihluta 14. ágúst 2008 21:52
Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, telur að Óskar Bergsso-n, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, hafi svikið það samkomulag minnihlutans í borginni að taka ekki þátt í þeim vinnubrögðum sem sjálfstæðismenn viðhafi.Dagur var gestur í Íslandi í dag í kvöld og þar greindi hann frá því að Óskar hefði hringt rétt fyrir útsendingu Íslands í dag og tjáð honum að hann stefndi að myndun meirihluta með Sjálfstæðisflokknum.Aðspurður hvort hann hefði boðið Ólafi til meirihlutasamstarfs í Tjarnarkvartettinum neitaði Dagur því en sagði að minnihlutinn hefði rætt hvort hægt væri að mynda Tjarnarkvartettinn á ný á fundi sínum í morgun. Það hefði þýtt að Ólafur F. Magnússon hefði þurft að stíga til hliðar.Ólafur og hans menn hefðu verið að fara yfir það en vegna þess að framsóknarmenn hafi ekki treyst sér til þess að segja að Tjarnarkvartettinn væri fyrsti kostur hjá þeim þá viti hann ekki hvort samstarfið hafi komið til alvarlegrar skoðunar hjá Ólafi F. Magnússyni.Dagur minnti á að minnihlutinn hefði við myndun meirihluta Sjálfstæðisflokks og F-lista dregið línu í sandinn og sagst ekki vilja innleiða klækjastjórnmál. Aðspurður hvort Óskar væri að svíkja minnihlutann svaraði Dagur: „Hann er að svíkja í raun það að taka ekki þátt í þessu leikriti sem Sjálfstæðisflokkurinn er að setja á svið í raun í þriðja skiptið."Gengur ekki að skrifa upp á svona vinnubrögðDagur telur að sjálfstæðismenn hafi í tvígang brotið prinsipp í stjórnmálum, annars vegar í samskiptum sínum við Björn Inga Hrafnsson, fyrrverandi borgarfulltrúa Framsóknarflokksins, og hins vegar með samstarfinu við Ólaf.„Ég held undiraldan í borginni, kannski innan Framsóknarflokksins, og reiðin snúist að því að það hljóti allir að átta sig á að ef við viljum stöðugleika og festu við stjórn borgarinnar þá gengur ekki að skrifa upp á svona vinnubrögð. Það gengur ekki að í stað þess að stjórnmálamenn glími við viðfangsefnin sem eru á borðinu að þá hlaupi þeir alltaf til og skipti um samverkafólk," sagði Dagur.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira