Ríkisstjórnin segir NEI við ofbeldi gegn konum 14. ágúst 2008 12:32 Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra.
Undirskriftaátakið Segjum NEI við ofbeldi gegn konum opnaði á vefsíðu í dag og undirrituðu utanríkisráðherra, samgönguráðherra og heilbrigðisráðherra áskorunina fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Átakið er hvatning til ríkisstjórna heims að grípa til aðgerða til að binda endi á ofbeldi gegn konum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá UNIFEM á Íslandi. Í nóvember fór af stað átakið Say NO to Violence against Women og í dag opnaði landsnefnd UNIFEM á Íslandi sérstaka heimasíðu tileinkaða átakinu til þess að hvetja Íslendinga til þess að ljá málefninu lið og skrifa nafn sitt undir áskorun til ríkisstjórna heims. „Ef eitthvað skiptir máli i samfélögum heims þá er það að auka réttindi og bæta stöðu kvenna, ekki bara fyrir konur heldur samfélagið allt. Við skulum ekki gleyma því að konur eru ekki bara fórnarlömb heldur einnig gerendur í eigin lífi. Konur um allan heim taka málin í sínar hendur og þess vegna er svona átak mikilvægt því að það styður þær í því," sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra á fundinum í morgun, samkvæmt tilkynningunni, um leið og hún hvatti aðra ráðherra, þingmenn og almenning til að leggja átakinu lið. Markmið átaksins er að fá sem flesta Íslendinga til þess að skrifa undir áskorunina og mun átakið standa yfir í 12 vikur og lýkur 6. nóvember næstkomandi. Undirskriftirnar verða þá sendar formlega til höfuðstöðva UNIFEM í New York. Heimsátakinu lýkur 25. nóvember á baráttudegi Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi. „Ofbeldi gegn konum er málefni sem getur ekki beðið. Að minnsta kosti ein af hverjum þremur konum er barin, þvinguð til kynlífs eða misnotuð á annan hátt einhvern tímann á lífsleiðinni. Fimmta hver kona verður fórnarlamb nauðgunar eða tilraunar til nauðgunar. Mansal, kynferðisleg áreitni, limlesting á kynfærum kvenna, morð vegna heimanmunds, heiðursmorð og útburður stúlkubarna eru hluti af sama vandamáli, þetta er allt ofbeldi gegn konum. Ekkert land, engin menning, engin kona ung eða gömul, er ónæm fyrir þessari plágu. Alltof oft er komist upp með þessa glæpi án þess að refsað sé fyrir og ofbeldismennirnir ganga lausir. " segir Regína Bjarnadóttir stjórnarformaður UNIFEM á Íslandi í tilkynningunni. Heimasíðu átaksins er að finna hér.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira