Aldrei fleiri tilnefningar til Edduverðlauna 1. nóvember 2008 17:22 Baltasar Kormákur leikstjóri.
Brúðguminn hefur að öllum líkindum sett met í fjölda tilnefninga til Edduverðlauna en myndin hlaut 14 tilnefningar. „Ég man ekki eftir að það hafi svo margar tilnefningar verið á eina mynd," segir Baltasar Kormákur, leikstjóri myndarinnar, þegar Vísir spyr hann út í málið. Hann segir að kvikmyndin Hafið hafi hlotið 12 verðlaun en bendir á að það ár hafi ekki verið eins stórt í kvikmyndagerð og núna. „Það er óvenju mikið af myndum í ár og svo kemur allt sjónvarpsefnið inn í allar tilnefningarnar nema Besta myndin," segir Baltasar. Baltasar segir að það gangi mjög vel að kynna myndina erlendis og búið sé að ganga frá sölu á henni til Ameríku. Baltasar segir að það taki alltaf lengri tíma að kynna myndir á öðrum tungumálum en ensku, sem komi frá litlum framleiðendum. „Mýrin var sýnd í Frakklandi og Englandi í sumar, tveimur árum eftir að hún er gerð," segir Baltasar. Baltasar segist vera að vinna að nýrri mynd sem heiti Inhale, sem var tekin upp í Nýju Mexíkó í sumar. Þá sé hann jafnframt að vinna að stórri Víkingamynd sem sé gerð í samvinnu við bandaríska aðila og verði tekin upp að langstærstum hluta á Íslandi. Baltasar segist að sjálfsögðu finna fyrir kreppunni. Hann hafi hins vegar ekki verið í áhættufjárfestingum og því snerti kreppan hann ekkert sérstaklega. Baltasar vonast til þess að efnahagsástandið hér heima verði ekki til þess að þeir sem séu í kvikmyndaframleiðslu brenni sig illa. Þá vonast hann jafnframt til þess að Kvikmyndasjóður verði ekki skorinn niður.
Mest lesið Útför Björgvins opin almenningi Lífið Einvígi aldarinnar endurtekið Lífið Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Lífið Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Lífið Krummi kveður pabba sinn Lífið Milljónir í að efla tónleikastaði í miðbænum Tónlist Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Lífið Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Lífið „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Lífið Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Lífið Fleiri fréttir Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Sjá meira