Forsætisráðuneytið óþarflega veikt Nanna Hlín skrifar 21. júlí 2008 13:50 Árni Páll Árnason
Árna Páli Árnasyni þingmanni Samfylkingar líst vel á að forsætisráðherra hafi ráðið sér ráðgjafa í efnahagsmálum. Árni telur að þannig megi styrkja almenna efnahagsráðgjöf hjá forsætisráðuneytinu. Geir Haarde forsætisráðherra réð á föstudaginn Tryggva Þór Herbertsson sem ráðgafa í efnahagsmálum til 6 mánaða. „Forsætisráðuneytið er óþarflega veikt og fámennt ráðuneyti, það mætti vera stærra. Ég tel ekki æskilegt að hafa þannig umgjörð í efnahagsmálum að þörf sé á að ráða efnahagsráðgjafa þegar allt er komið í óefni," segir Árni. „Æsklilegra er að hafa efnahagsráðgjöf í góðærinu líka." ,,Miðað við þann dans sem hefur verið hér undanfarin ár væri gott að hafa óháða stofnun líkt og Þjóðhagsstofnun var sem væri sjálfstæð upplýsingaveita og ráðgjafaaðili um efnahagsmál," segir Árni. Aðspurður sagðist hann ekki deila þeim áhyggjum sem Valgerður Sverrisdóttir hafði í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær um skoðun Tryggva á ESB-málum og tengsl við Sjálfstæðisflokkinn. „Tryggvi er maður með mikla reynslu og forsætisráðherra velur sér þann sem hann vill fá til ráðgjafar," segir Árni en hann telur að Tryggvi þurfi að nálgast aðild af Evrópusambandinu á faglegum forsendum eins og aðrir. Árni telur best að dæma hinn nýráðna ráðgjafa í efnahagsmálum af verkum hans.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira