Vilja að Alþingi komi saman á næstu dögum 21. júlí 2008 13:05
Þingflokkur Vinstri grænna fer fram á að Alþingi komi saman eftir verslunarmannahelgi til að fjalla um stöðu og horfur í efnahags- og atvinnumálum og hvað vænlegast er að gera til að verja þjóðarbúið frekari áföllum og endurheimta efnahagslegan stöðugleika. Þetta kemur fram í bréfi sem þingflokkurinn hefur sent Geir H. Haarde, forsætisráðherra, Sturlu Böðvarssyni, forseta Alþingis, Gunnari Svavarssyni, formanni fjárlaganefndar, og Pétri Blöndal, formanni efnahags- og skattanefndar. Á fundi sínum í morgun samþykkti þingflokkurinn einnig ályktun um stöðu efnahagsmála. Þar segir að þær ,,alvarlegu" horfur sem nú eru í efnhags- og atvinnumálum hafi verið fyrirsjáanlegar og flokkurinn hafi varað við þeim allt frá árinu 2004. ,,Hinar ofvöxnu stóriðjufjárfestingar, skattalækkanir á þenslutímum, skuldsett útrás og gáleysisleg framganga nýeinkavæddra banka leiddi ásamt fleiru af sér þenslu, verðbólguþrýsting og geigvænlegan viðskiptahalla sem að lokum hlaut að verða til stórfelldra vandræða í efnahags- og atvinnulífinu. Hagvöxtur reyndist í allt of miklum mæli byggður á erlendri lántöku og aukinni skuldsetningu þjóðarbúsins og var um of neyslu- og eyðsludrifinn." Þingflokkurinn átelur ráðherra og þingmenn stjórnarflokkanna fyrir að eyða orku á miðju sumri um Evrópumál og segir Samfylkinguna gera út á erfiðleika þjóðarbúsins og þrýsta á um inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Vinstri grænir telja allt tal um upptöku evru og inngöngu í ESB vera flótta frá veruleikanum. ,,Þingflokkur Vinstri grænna varar við því að kreppan sé mögnuð upp með óhóflegu svartsýnistali og grafið sé undan tiltrú á gjaldmiðilinn og möguleika þjóðarinnar til að standa á eigin fótum og þróa hér áfram á sjálfstæðum forsendum farsælt og blómlegt velferðarsamfélag í góðri sátt við náttúruna og sem byggir á grunngildum um sjálfbæra þróun." Að mati VG ríkir ráðleysi og deilur innan ríkisstjórnarinnar sem geri lítið annað en að auka vandann.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira