Innlent

Tífalt fleiri á skrá hjá Vinnumiðlun ungs fólks í vor

Nanna Hlín skrifar
Ungt fólk við störf. Mynd úr safni.
Ungt fólk við störf. Mynd úr safni.

Þrjúhundruð manns voru á skrá hjá Vinnumiðlun ungs fólks á vegum Reykjavíkurborgar um mánaðarmótin maí, júní en á sama tíma í fyrra voru þar aðeins þrjátíu manns. Vinnumiðlunin fékk aukafjárveitingu frá Reykjavíkurborg til þess að útvega fleirum vinnu. Var öllum þeim sem fædd eru 1990-1991 útvegað atvinnu en ekki var hægt að útvega öllum þeim sem eldri voru vinnu.

Elísabet Pétursdóttir hjá Vinnumiðlun ungs fólks sagði í samtali við Vísí í dag að ástæður þess að mun fleiri voru á skrá nú en fyrir ári vera bæði vegna efnahagsástandsins en einnig þar sem yngsta kynslóðin er vön að geta gengið að vinnu vísri.

„Það var ekki bara það að erfiðara væri að fá vinnu heldur voru margir ekki nægilega duglegir að fylgja umsóknunum sínum eftir, ýttu ekki á eftir umsóknunum sínum með því að hringja. Voru svo kannski hissa á því að fá neitun frá fyrirtækjum í gegnum tölvupóst í maí," segir Ingibjörg.

Ingibjörg nefnir einnig að margir hafi fengið vilyrði fyrir vinnum fyrr í vetur sem hafi svo ekki staðist þegar fram í maí var komið. Að hennar sögn hringdu starfsmenn einkafyrirtækja í Vinnumiðlunina í leit að starfskröftum og því telur Ingibjörg að nóg að atvinnu hafi verið að finna í sumar en það hafi þurft að ganga meira á eftir henni en fyrri sumur.


















Fleiri fréttir

Sjá meira


×