Innlent

Talar við Ramses á hverjum degi

Nanna Hlín skrifar
Rosemary Athieno og Fídel Smári.
Rosemary Athieno og Fídel Smári.

Rosemary Athieno, eiginkona Paul Ramses segist tala við mann sinn á hverjum degi. ,,Mér líður betur núna, ég fékk að vita í gær að ég og sonur minn fáum að vera á Íslandi þangað til það kemur í ljós hvað verður gert í máli Pauls."

Hún segir hins vegar erfitt að vera ein að sjá um nýfætt barn og að Fídel Smári gráti mikið.

Lögfræðingur Ramses, Katrín Theódórsdóttir mun leggja fram kæru til dómsmálaráðuneytisins í dag og krefjast þess að ákvörðunin um synjun verði gerð ógild og að málið verði tekið til efnismeðferðar.

Málið hefur vakið mikla athygli hér á landi. Meðal annars hefur meðferð á máli Paul Ramses verið mótmælt fyrir utan dóms-og kirkjumálaráðaráðuneytið í hádeginu síðustu daga og fjöldi manns hefur einnig skrifað undir áskorun til íslenskra stjórnvalda um að snúa Paul Ramses aftur heim.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×