"Telur þetta sín prívat gögn" SB skrifar 9. júlí 2008 20:21 Hjörleifur B. Kvaran, forstjóri Orkuveitunnar, segir málið í góðum farvegi.
Hjörleifur B. Kvaran, forstjóri Orkuveitunnar, segir Guðmund Þóroddsson hafa álitið gögnin sem hann tók með sér þegar hann hætti störfum sín eigin. Jeppinn sé að mati Guðmundur hluti af 12 mánaða starfslokasamningi hans. "Guðmundur taldi þetta sín prívat gögn og ég veit ekki betur en hann ætli að skila þeim," segir Hjörleifur B. Kvaran, forstjóri Orkuveitunnar. Hann segist hafa rætt við Guðmund fyrr í þessari viku og hafi talið málið í eðlilegum farvegi. "Síðan er ágreiningur um hver starfskjör hans eiga að vera. Hann er með ráðningarsamning sem kveður á um ákveðin réttindi, laun og þess háttar og það eru skiptar skoðanir um hvað í laununum felst; hvort hlunnindi eins og jeppinn teljist með á uppsagnarfresti. Lögfræðinga greinir á um þetta og það er verið að leita lausnar á því." Rúv greindi frá málinu fyrr í kvöld. Í frétt þeirra kom fram að Guðmundur hefði haft á brott marga kassa með viðkvæmum trúnaðarupplýsingum, fundargerðum og slíku. Rúv staðhæfir að Guðmundi hafi í dag verið send krafa þar sem komi fram að ef hann skili gögnunum ekki í dag verði að leita annarra leiða - eins og fara í mál eða kveða til sýslumann í aðfaragerð að fengnum dómsúrskurði. Hjörleifur undrast að málið skuli hafa verið sett fram með þessum hætti í fréttum. Það sé alls ekki jafn alvarlegt og látið hafi verið í veðri vaka. "Það er enginn fréttamaður sem hefur leitað til mín, enginn sem hefur rætt við mig málið eða leitað skýringa hjá mér," segir Hjörleifur. Spurður af hverju ekki hafi verið greint frá málinu fyrr segir hann: "...auðvitað er ég ekki að fara með þetta sjálfur í blöð eða fréttastofur þegar það er verið að fá lögfræðinga til að fara yfir það."
Tengdar fréttir Tók trúnaðargögn og farinn í frí Ekki næst í Guðmund Þóroddson, fyrrverandi forstjóra Orkuveitunnar, sem tók með sér marga kassa af trúnaðargögnum þegar hann lét af störfum og neitar að skila jeppa frá fyrirtækinu. Barnfóstra hans segir Guðmund í fríi úti á landi. 9. júlí 2008 19:37 Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira
Tók trúnaðargögn og farinn í frí Ekki næst í Guðmund Þóroddson, fyrrverandi forstjóra Orkuveitunnar, sem tók með sér marga kassa af trúnaðargögnum þegar hann lét af störfum og neitar að skila jeppa frá fyrirtækinu. Barnfóstra hans segir Guðmund í fríi úti á landi. 9. júlí 2008 19:37