Algerlega árangurslaus fundur segja ljósmæður 9. júlí 2008 12:49
Samningafundi kjaranefndar Ljósmæðrafélags Íslands og samningnefdar ríkisins lauk um kl. 11 í dag (9/7) án þess að nokkuð miðaði í samningsátt. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá BHM nú fyrir stundu. Þar segir að kröfur beggja séu í steyptum farvegi og aðilar séu ekkert nær samningum. Þar segir ennfremur að um tvö aðskilin mál sé að ræða. „Ljósmæður hafa frá upphafi lýst yfir vilja, við samninganefnd ríkisins, um að ganga að þeim samningi sem nú þegar hefur verið gerður við flest félög innan BHM og felur m.a. í sér 20300 kr hækkun allra grunnlauna. Viðræður stranda hins vegar á kröfu ljósmæðra um að fá menntun sína og störf metin að verðleikum í samræmi vð aðrar stéttir í þjónustu hins opinbera með svipaða menntun. Þessari kröfu hefur Ljósmæðrafélag Íslands haldið á lofti í mörg ár og eru ljósmæður því langþreyttar á ástandinu. Síðastliðinn aldarfjórðung hefur menntamálaráðuneytið gert kröfu um 6 ára nám til embættisprófs ljósmæðra. Síðastliðin 13 ár hefur allt námið verið á háskólastigi. Langlægst laun miðað við menntun Tölur frá kjararannsóknarnefnd opinberra starfsmanna sýna best stöðu stéttarinnar miðað við aðrar stéttir. Til ljósmæðra eru gerðar einar hæstu menntunarkröfur sem til háskólamanna eru gerðar af hálfu ríkisins. Af 24 stéttarfélögum innan BHM eru ljósmæður í 7. neðsta sætinu þrátt fyrir að vera eitt af tveimur félögum með mestu menntunarkröfurnar. Sex efstu félög innan BHM eru með töluvert hærri meðalgrunnlaun en ljósmæður eða 73.511 krónum hærri að meðaltali. Krafa Ljósmæðrafélags Íslands er að ljósmæður verði eftir næstu kjarasamninga í hópi þessara sex efstu félaga innan BHM. Langt í næsta fund Næsti samningafundur er boðaður 6. ágúst kl. 13, eða eftir liðlega 4 vikur. Ljósmæðrafélag Íslands lýsir yfir áhyggjum sínum með ástand mála í ljósi þess að um helmingur stéttarinnar hefur nú þegar sagt upp störfum sínum. "
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira