Talið líklegt að Sigríður Björk sæki um á Suðurnesjum Jón Hákon Halldórsson skrifar 24. september 2008 10:54 Sigríður Björk Guðjónsdóttir aðstoðarríkislögreglustjóri.
Sigríður Björk Guðjónsdóttir aðstoðarríkislögreglustjóri vill hvorki játa því né neita að hún muni sækja um embætti Lögreglustjórans á Suðurnesjum þegar Jóhann R. Benediktsson lætur af störfum. „Það hefur engin ákvörðun verið tekin um slíkt," sagði Sigríður Björk þegar Vísir náði af henni tali. Orðrómur hefur verið um að hún myndi sækja um, enda hefur hún notið mikils trausts hjá dómsmálaráðherra í störfum sínum hingað til. Morgunblaðið greindi frá því í síðustu viku að Jóhann R. Benediktsson, lögreglustjóri Suðurnesja, hefði fengið bréf frá dómsmálaráðuneytinu þann 1. september síðastliðinn. Í bréfinu var honum greint frá því að starf hans yrði auglýst laust til umsóknar. Þetta var gert þrátt fyrir að Jóhann hefði ekki óskað undan lausn frá embætti. Jóhann mun svo funda með starfsfólki sínu í dag, þar sem gert er ráð fyrir að hann tilkynni um starfslok sín. Sigríður Björk var skipuð aðstoðarríkislögreglustjóri í desember 2006, en áður var hún sýslumaður á Ísafirði. Hún er búsett í Reykjanesbæ og gift Skúla S. Ólafssyni, sóknarpresti í Keflavíkurprestakalli.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Erlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri fréttir Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Sjá meira