Lífið

Ásdís komin í efsta sætið

Þessi mynd er tekin af heimasíðu keppninnar Is She Hot?
Þessi mynd er tekin af heimasíðu keppninnar Is She Hot?

Fyrirsætan Ásdís Rán Gunnarsdóttir hefur tekið forystuna í hinni æsispennandi Is She Hot? keppni sem nú fer fram á afþreyingarvefnum savvy.com.

Ásdís er eiginkona knattspyrnukappans Garðars Gunnlaugssonar.

Keppnin gengur út að gefa þáttakendum einkunn fyrir fegurð þeirra og þokka. Þegar þetta er skrifað hefur Ásdís Rán skotist í efsta sætið með meðaleinkunn upp á 9.01.

Verði Ásdís ennþá í efsta sætinu að degi loknum hefur hún unnið sér sæti í áströlskum raunveruleikasjónvarpsþættti þar sem sigurvegarinn hlýtur eina milljón punda í verðlaun.

Ásdís Rán hefur sagst ætla að gefa hluta af því til góðgerðamála beri hún sigur úr býtum.

Hér er hægt að sjá stigatöflu keppninnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.