Ísland tengist nýjum reglum ESB um fangaframsal 29. febrúar 2008 12:43 Franco Frattini og Björn Bjarnason eftir fundinn í Brussel í gær. MYND/Dómsmálaráðuneyti
Stefnt er að því að Ísland tengist nýjum reglum sem eru í mótun inna Evrópusambandsins um framsal dæmdra manna milli ríkja. Þetta var meðal þess sem Björn Bjarnason dómsmálaráðherra og Franco Frattini, dómsmálastjóri ESB, ræddu á fundi sínum í gær. Í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu segir að hinar nýju reglur miði að því að auðvelda framsal milli landa með það að markmiði að fangar taki út refsingu í heimalandi sínu. Björn og Frattini ræddu einnig sameiginleg verkefni sem leiða af Schengen-aðild Íslands og snerta samstarf á sviði öryggis- og lögreglumála. Þá gerði dómsmálaráðherra Frattini grein fyrir því, að ríkisstjórnin hefði samþykkt, að hann ræddi um þátttöku í lögreglusamstarfi ESB-ríkjanna, sem byggist á svonefndu Prüm-samkomulagi. Munu embættismenn Íslands og ESB vinna að úrlausn málsins með það fyrir augum að tengslin verði samningsbundin. Þá ætla Ísland og ESB að hafa sem mest samstarf um skráningu og miðlun persónuupplýsinga flugfarþega, bæði innan Schengen-svæðisins og einnig gagnvart Bandaríkjunum. Kemur fram í tilkynningunni að eftirlit af þessu tagi sé ein öflugasta leiðin til að sporna gegn hryðjuverkum og skipulagðri glæpastarfsemi.
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Sjá meira