Fjöldi hjólhýsa hefur nærri fjórfaldast á fimm árum 28. maí 2008 21:58
Fjöldi hjólhýsa hér á landi hefur nærri fjórfaldast og fjöldi húsbíla hefur rúmlega tvöfaldast á síðustu fimm ár hér á landi. Þetta kemur fram í svari Kristjáns L. Möller samgönguráðherra við fyrirspurn Álfheiðar Ingadóttur, þingmanns Vinstri grænna. Alls eru næri 16.500 hjólhýsi, tjaldvagnar, húsbílar og fellihýsi í umferð hér á landi. Þar af eru hjólhýsin nærri 2800 en voru rúmlega 700 árið 2003. Enn fremur eru hér rúmlega 10.400 tjaldvagnar og hefur fjölgað um þriðjung á þessum tíma. Húsbílarnir eru um 2.300 en voru 900 árið 2003. Álfheiður spurði einnig hversu mörg slík tæki hefðu tengst umferðarslysum á síðustu fimm árum og reyndust þau 135. Þar af var eitt banaslys og tvö slys með alvarlegum afleiðingum. Þá spurði Álfheiður hvort ráðherra teldi þörf á að herða eftirlit með þessum farartækjum og gera þau skoðunarskyld. Í svari ráðherra segir að kerrur undir 750 kílóum séu hvorki skráningar- né skoðunarskyldar. Hins vegar séu tengitæki, svo sem hjólhýsi, tjaldvagnar og fellihýsi, skráningarskyld en ekki skoðunarskyld. Í ráðuneytinu sé nú unnið að mótun reglna um skráningu og skoðun eftirvagna og tengitækja bifreiða og verður í þeirri vinnu hugað að því að gera þau sem eru yfir 750 kg að þyngd skoðunarskyld. Nýleg ökutæki skoðuð sjaldnar Þá segir ráðherra reglur um skoðun ökutækja enn fremur í athugun með tilliti til þess hversu oft skuli færa ökutæki til skoðunar. Hér á landi sé gengið lengra hvað þetta varðar en í nágrannalöndunum. Í þessu sambandi hefur verið rætt um að skoða nýleg ökutæki sjaldnar eða fyrst eftir fjögur ár en síðan á tveggja ára fresti og leggja meiri áherslu á skoðun þeirra sem eldri eru. Hið sama mundi þá gilda um skoðun á hjól- og fellihýsum, tjaldvögnum og kerrum yfir 750 kg. Það fylgir í svarinu að árið 2002 hafi 10.900 dráttarvélar verði skráðar í landinu en þær voru 11.400 í fyrra.
Mest lesið Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Erlent Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Enginn andvígur hvalveiðum Innlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Skordýr í súpu skólabarna Innlent Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Erlent Fleiri fréttir Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Sjá meira