Innlent

Myndasaga eftir Hugleik prýðir nýja símaskrá

Símaskráin 2008 kom út í morgun. Hún er með nýstárlegu sniði í ár. Myndasaga eftir Hugleik Dagson prýðir síður hennar. Höfundurinn áritar fyrstu hundrað eintökin.

Símaskráin er bók sem hefur löngum verið sögð hafa margar persónur en afar lélegan söguþráð. Nú hefur því verið kippt í liðinn og skopteiknarinn Hugleikur Dagson fenginn til að teikna kápu skránnar og síðan myndasögu í hana.

Fyrir utan myndasöguna eru fleiri nýjunar í skránni. Gulu síðurnar eru fremst í þetta sinn og efnisyfirlit þeirra á ensku og pólsku auk íslensku. Landsbyggðahlutunum, sem eru sjö talsins, hefur verið breytt þannig að nöfnum í hverjum landshluta er raðað í stafrófsröð eins og á höfuðborgarsvæðinu en ekki í starfrófsröð undir heiti sveitarfélaga.

Hefðbundin símaskrá er ókeypis en harðspjalda kostar sjö hundruð krónur. Hægt er að nálgast hana í verslunum Bónuss, Símans, Vodafone og á bensínstöðvum Olís og Skeljungs á höfuðborgarsvæðinu og hjá Símanum, Vodafone og á afgreiðslustöðvum Póstsins á landsbyggðinni.

Hægt er að skila gömlum skrám á bensínstöðvum og hjá Símanum í Ármúla í Reykjavík verður móttökugámur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×