Innlent

Allt að sex hundruð bílar stöðvaðir á Akureyri

Umferð um Suðurlandsveg hefur verið nokkuð þung eftir hádegi. Allt hefur þó gengið vel, að sögn lögreglunnar á Selfossi. Sömu sögu er að segja af Vesturlandsvegi, þar er umferð orðin nokkuð þétt. Að sögn lögreglunnar í Borgarnesi hefur svolítið borið á óþarfa framúrakstri, en sem betur fer hafa engin óhöpp hlotist af.

Þá er einnig þung umferð til og frá Akureyri, þar sem "Ein með öllu" var haldin um helgina. Lögreglan hefur haldið uppi öflugu umferðareftirliti hvarvetna um landið í dag. Á Akureyri voru um 5 - 600 bílar stöðvaðir í morgun og kannað hvort ökumenn væru undir áhrifum áfengis. Talið er að tveir þeirra hafi verið ölvaðir.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×