Thelma Ásdísardóttir: Fæ sting þegar ofbeldi er verðlagt Jón Hákon Halldórsson skrifar 4. ágúst 2008 17:43 Thelma Ásdísardóttir vill skýr skilaboð til samfélagsins. Mynd/ Stefán. „
Stjórnvöld og dómsvaldið þurfa að senda skýr skilaboð til samfélagsins um að kynferðisafbrot verði ekki liðin," segir Thelma Ásdísardóttir, starfskona Stígamóta. Héraðsdómur Reykjaness dæmdi mann í fjögurra ára fangelsi í síðustu viku fyrir kynferðisbrot gegn sjö börnum. Þá var hann dæmdur til að greiða þolendunum miskabætur, allt upp í tvær milljónir króna. Thelma segir að sér finnist dómar í kynferðisbrotamálum almennt vera allt of lágir. Þessi dómur sé hins vegar í þyngri kantinum miðað við það sem hafi tíðkast. Reynslan sýni að upplifun af svona ofbeldi geti haft alvarlegar afleiðingar til langs tíma. „Dómskerfið hefur verið að stíga ágætis skref í kynferðisbrotamálum. Maðurinn sat í gæsluvarðhaldi þar til dómur féll og ég held að það sé mjög jákvætt," segir Thelma í samtali við Vísi. Thelma segist vera þeirrar skoðunar að tilgangurinn með þungum dómum í kynferðisafbrotamálum sé ekki eingöngu sá að refsa mönnunum heldur að senda skýr skilaboð út í samfélagið um að afbrot af þessu tagi verði ekki liðin. Menn sem brjóti af sér með þessum hætti skilji eftir sig slóð af hörmungum. "Varðandi bætur að þá fæ ég alltaf svolítinn sting þegar ég heyri að það sé verið að verðleggja ofbeldið," segir Thelma. Hún segir hins vegar að þegar bætur séu dæmdar til brotaþola sé það ákveðin viðurkenning á því að brotið hafi valdið þolandanum skaða. "Mér finnst það jákvætt að því leyti til," segir Thelma. Thelma segir jafnframt að tryggja þurfi að þolendur fái bætur greiddar þó að gerendur séu ekki borgunarmenn fyrir bótunum. Þá segir Thelma að það sé mjög mikilvægt að þolendunum sé tryggð sú þjónusta sem í boði er. Þá þurfi brotamenn einnig að fá nauðsynlega aðstoð.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Sjá meira