Sjálfstæðisflokkurinn verður að fara að girða sig í brók Breki Logason skrifar 19. apríl 2008 18:34 Dagur B Eggertsson segir afstöðu minnihlutans í málefnum REI skýra.
Dagur B. Eggertsson oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn segir stefnu minnihlutans í málefnum REI vera skýra en bendir á að Sjálfstæðisflokkurinn skipti um skoðun frá degi til dags. Hann segir upphlaupið sem er í kringum REI núna eiga rætur að rekja til innbyrðis átaka meirihlutans en komi verkefnum REI lítið við. „Það sést best á því að það eru tveir mánuðir síðan allir flokkar í borgarstjórn komust að sameiginlegri niðurstöðu um að REI ætti að vera 100% í eigu Orkuveitunnar og ætti að vera í útrás en efna til samstarfs um einstök verkefni við einkaaðila, það er skoðun minnihlutans,“ segir Dagur og bendir á að Sjálfstæðisflokkurinn sé með nýja stefnu frá degi til dags. Vilhjálmur Þ Vilhjálmsson oddviti Sjálfstæðismanna í borginni spurði hver afstaða minnihlutans væri í málefnum REI hér á Vísi fyrir stundu. „Þetta stjórnleysi skaðar ekki bara Orkuveituna og REI heldur aðra íslendinga sem eru í orkuútrás erlendis. Þessi fíflagangur er fyrir löngu búinn að kasta rýrð á þennan meirihluta og ég leyfi mér að segja á stjórnmál í landinu. Sjálfstæðisflokkurinn verður að fara að girða sig í brók og taka á sínum málum ef þetta á ekki að kosta borgarbúa meira en orðið er," segir Dagur sem undrast ummæli Vilhjálms. „Það er í raun ótrúlegt að menn skuli vilja beina spjótum sínum eitthvað annað þegar þeir eru að stilla samstarfsaðilum sínum upp við vegg vegna innbyrðis átaka eins og þeir eru að gera núna gagnvart borgarstjóra."
Mest lesið Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Innlent Líkfundur við Austurbæjarskóla Innlent Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Innlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Innlent Hafa borið kennsl á hinn látna Innlent Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Erlent Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu Innlent Leita karlmanns á sjötugsaldri Innlent Fleiri fréttir Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Leita karlmanns á sjötugsaldri Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Gripinn með stolið kreditkort og handtekinn Hafa borið kennsl á hinn látna Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Kveikt á götulýsingu í sólmyrkva á stofnbrautum Líkfundur við Austurbæjarskóla Hólmbert bjargaði manni úr bíl sem stóð í ljósum logum í Kóreu Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Gera ráð fyrir óvenjulangri aðalmeðferð í Reykholtsmálinu Tók konu kyrkingartaki nóttina eftir dóm og verður lengur í haldi Segir efnahagsmálin og verðbólguna að þróast í rétta átt Kristrún vísar ásökunum um sinnuleysi á bug Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Vill að vinnu við gerð áhættumats verði flýtt Leita óþekkts árásarmanns á Þjóðhátíð Kæra varðhald þriðja mannsins til Landsréttar Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Þriðji maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald Líkur á rigningu í Reykjavík þegar almyrkvinn gengur yfir Gæsluvarðhalds krafist yfir þriðja manninum Björgunarsveitir sinntu tveimur slösuðum ferðamönnum Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu ,,Þetta eru kosningaherferðarfundir Kristrúnar Frostadóttur fyrir Já til að sjá'' Fyrir fólk sem búi á almyrkvaslóðinni sé nóg að „vera úti í garði og upplifa allt“ Sjá meira