Pólverji á Íslandi eftirlýstur fyrir morð í Póllandi 12. apríl 2008 12:00
Pólskur karlmaður sem stundað hefur byggingavinnu hér á landi undanfarna mánuði er eftirlýstur af pólsku lögreglunni fyrir hrottalegt morð í heimalandi sínu. Íslensk lögregluyfirvöld bíða eftir handtökubeiðni frá Póllandi. Fréttablaðið greinir frá þessu í dag. Þar segir að maðurinn sé grunaður um morð í Wloclawek í Póllandi og var handtökutilskipun gefin út á hann á síðasta ári. Hann var þá í tengslum við glæpahóp sem meðal annars fékkst við fíkniefnasölu og peningaþvætti. Grunar lögreglu að hópurinn sé að færa út kvíarnar, meðal annars með því að selja pólskar konur í vændisþjónustu í Þýskalandi. Maðurinn hélt til Íslands eftir að handtökutilskipunin var gefin út. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu geta íslensk lögregluyfirvöld ekkert aðhafst þar til pólsk lögregluyfirvöld hafa sent eftirlýsingu eða handtökubeiðni á manninn. Hafa lögregluyfirvöld á Íslandi og í Póllandi verið í sambandi vegna málsins. Að sögn lögreglu er vitað hver maðurinn er, en ekki fengust svör við því hvort hann sé undir sérstöku eftirliti. Pólska dagblaðið Gazeta greinir frá því að maðurinn og félagar hans stundi þá iðju að taka hús á löndum sínum búsettum hér á landi og krefji þá um peninga með hótunum um ofbeldi. Lögregla segist ekki hafa áþreifanlegar sannanir fyrir að þessi iðja sé stunduð hér á landi, en hafi þó heyrt sögusagnir þess efnis. Maðurinn mun ekki tengjast árásarhópnum sem réðist á hóp Pólverja í Keilufelli í síðasta mánuði.
Mest lesið Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Innlent Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi Innlent Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira