Meintur morðingi gengur laus 12. apríl 2008 18:56
Pólskur karlmaður sem er eftirlýstur fyrir morð í heimalandi sínu hefur óáreittur stundað byggingavinnu á Íslandi í nokkra mánuði. Lögreglan veit af manninum en aðhefst ekki þar sem hann er ekki eftirlýstur á alþjóðavettvangi. Í Fréttablaðinu í dag er sagt frá því að maðurinn sé grunaður um hrottalegt morð í Wloclawek í Póllandi, þar sem handtökuskipun var gefin út á hendur honum í fyrra. Eftir það flúði maðurinn til Íslands en hér hefur hann starfað við byggingavinnu um nokkurra mánaða skeið. Lögreglan staðfesti við fréttastofu Stöðvar tvö að hún viti hver maðurinn er en vill ekki gefa upp hvort hann er undir sérstöku eftirliti. Í samtali við fréttastofu sagði Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á öfuðborgarsvæðinu, að til að íslensk lögregluyfirvöld geti aðhafst í málinu verði maðurinn að vera eftirlýstur á alþjóðavettvangi, sem hann er ekki. Að öðru leyti vildi lögreglustjóri ekki tjá sig um málið. Lögregluyfirvöld á Íslandi hafa sett sig í samband við starfsbræður sína í Póllandi og mun málið vera í vinnslu. En þar til pólsk lögregluyfirvöld lýsa eftir manninum á alþjóðavettvangi eða senda út handtökubeiðni á manninn gengur hann frjáls ferða sinna hér á landi. Í úttekt pólska dagblaðsins Gazeta á samfélagi Pólverja á Íslandi kemur fram að maðurinn hafi ásamt félögum sínum stundað að kúga fé út úr samlöndum sínum á Íslandi með hótunum um ofbeldi. Að sögn lögreglu hefur verið uppi orðrómur um að glæpagengi stundi þessa iðju hér á landi, en engar áþreifanlegar sannanir séu fyrir hendi. Maðurinn tengist ekki árásarhópnum sem réðist á hóp Pólverja í Keilufelli í síðasta mánuði.
Mest lesið Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Mikil spenna í veðurkortunum Innlent Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Innlent Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Fleiri fréttir Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi Sjá meira