Utanríkisráðuneytið fær falleinkunn vegna árásarinnar í Kjúklingastræti Óli Tynes skrifar 26. ágúst 2008 16:30
Utanríkisráðuneytið er fordæmt harkalega hjá þeim sem lentu í eða komu að sjálfsmorðsárásinni á íslensku friðargæsluliðana í Kabúl árið 2004.Afgönsk stúlka og bandarísk kona létu lífið þegar þrem handsprengjum var varpað á íslendingana. Fjórir þeirra særðust sem og afganskir vegfarendur.Hæstaréttardómararnir Guðrún Erlendsdóttir og Haraldur Henrýsson tóku að sér að vinna álitsgerð um málið fyrir utanríkisráðuneytið. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra kynnti álitsgerðina í dag.Þau fengu á sinn fund bæði þá sem lentu í árásinni og aðra sem að henni komu. Allir þessir aðilar fóru hörðum orðum um framgöngu utanríkisráðuneytisins á þessum tíma. Davíð Oddsson var þá nýlega tekinn við embætti utanríkisráðherra.Þeim bar saman um að viðbrögð ráðuneytisins hafi ekki verið nægilega markviss og mótast af vanmætti til að ráða við atvik sem þetta. Ekkert hafi verið gert af þess hálfu til að rannsaka á eigin vegum atburðinn og tildrög hans.Flestir sem gerðu skýrslu um málið kváðust hafa gert það að eigin frumkvæði. Ráðuneytið hafi staðið sig illa gagnvart fjölmiðlaumfjöllun og ekki gert gagnskör að því að leiðrétta augljósar missagnir sem fram komu.Viðbrögð ráðuneytisins gagnvart þeim mönnum sem fórum heim fljótlega eftir atburðinn hafi mótast af tómlæti. Fremur hafi orðið vart við viðleitni til að hafa áhrif á hvað þeir segðu við fjölmiðla en að sjá þeim fyrir nauðsynlegri hjálp.Framkoma við aðstandendur þegar atvikið var tilkynnt hafi verið tilviljanakennd og klaufaleg.Þess má geta að þrír þeirra sem særðust í árásinni hafa engar bætur fengið en málarekstur þess vegna hefur tekið fjögur ár.
Tengdar fréttir Verklagsreglur ekki sem skyldi hjá íslenskum friðargæsluliðum Frumábyrgð á árásinni á íslenska friðargæsluliða í Kabúl í október 2004 liggur hjá þeim sem skipulögðu og gerðu árásina segir í álitsgerð sem samin var fyrir utanríkisráðuneytið. 26. ágúst 2008 15:12 Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Innlent Fleiri fréttir Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sjá meira
Verklagsreglur ekki sem skyldi hjá íslenskum friðargæsluliðum Frumábyrgð á árásinni á íslenska friðargæsluliða í Kabúl í október 2004 liggur hjá þeim sem skipulögðu og gerðu árásina segir í álitsgerð sem samin var fyrir utanríkisráðuneytið. 26. ágúst 2008 15:12