Samfylkingarfólk skoðar neðri Þjórsá 24. júlí 2008 15:37 Anna Pála Sverrisdóttir, formaður Ungra jafnaðarmanna.
Á fjórða tug Samfylkingarfólks sem styður verndun neðri Þjórsár heimsækir í kvöld íbúa á svæðinu og fer í skoðunarleiðangur um svæðið sem fer undir vatn ef virkjunin verður að veruleika. Virkjunaráform í neðri Þjórsá hafa mætt andstöðu heimamanna. ,,Aðaltilgangurinn með ferðinni er að tala saman um framtíð svæðisins og möguleika þess. Ungir jafnaðarmenn hafna fyrirhuguðum virkjunum í Þjórsá og standa með íbúum sem vilja ekki uppistöðulón. Það hefur reyndar margoft komið fram í máli forystufólks Samfylkingarinnar að eignarnám komi ekki til greina til að af virkjunum verði og margir innan flokksins hafna virkjunaráformum eða hafa um þau sterkar efasemdir," segir Anna Pála Sverrisdóttir, formaður Ungra jafnaðarmanna, og bætir við að einn þeirra sé Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, sem leiddi lista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi í síðustu þingkosningum. Anna Pála gerir einnig athugasemdir við framgöngu Landsvirkjunar í málinu og segir að opinber fyrirtæki eigi ekki að geta lofað skattpeningum almennings í hluti á borð við gsm-samband og betri vegi í skiptum fyrir að fá að virkja. ,,Íbúarnir við Þjórsá hafa hvorki kynningarfulltrúa, verkfræðinga né lögfræðinga í fastri vinnu og eru því í erfiðri aðstöðu. Fólk er líka kannski óöruggt um jarðirnar sínar og samningsstöðu gagnvart Landsvirkjun og hvort það geti tapað peningum ef það vill ekki semja," segir Anna Pála. Ferðin verður farin frá Hallveigarstíg 1 klukkan fimm í dag. Boðið verður upp á súpu og brauð á lífræna búinu Skaftholti í Gnúpverjahreppi og fundað með íbúum og félögum í Sól á Suðurlandi.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira