Gagnrýnir Kínaför forseta harðlega Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir skrifar 24. júlí 2008 11:08 Sveinn Magnússon „
Hann á bara að segja nei takk nema hann ætli að nota tækifærið og berja í borðið," segir Sveinn Magnússon, framkvæmdastjóri Geðhjálpar. Hann er ósáttur við að Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands hafi þegið boð um að vera viðstaddur Ólympíuleikana í Peking. Og engu hrifnari af því ef Þorgerður Katrínar Gunnarsdóttir menntamálaráðherra fer í opinberum erindagjörðum á leikana. „Þetta er köld vatnsgusa framan í fólk að sjálfstæðismenn skuli sína þennan tvískinnungshátt," segir Sveinn. Yfirskrift leikanna þetta árið er „Einn heimur, einn draumur". Sá draumur er þó líklega ekki allra. Á opinberri heimasíðu leikanna eru skilyrði fyrir vegabréfsáritun til Kína tíunduð. Þar eru væntanlegir gestir leikanna vinsamlegast beðnir að vera vissir um að þeir lendi ekki í eftirfarandi; geðsjúkdómum, eyðni, kynsjúkdómum, eða farsóttum á borð við berkla. Að öðrum kosti geti þeim verið meinaður aðgangur að landinu. „Í Kína, líkt og í Sovétríkjunum sálugu, vill það brenna við að menn séu settir á geðsjúkrahús vegna pólitískra skoðana," segir Sveinn. „Þetta er ákveðið verkfæri í höndum valdhafa." Í Fréttablaðinu í dag er haft eftir Ólafi að vænlegasta leiðin til að styrkja mannréttindi og lýðræðisþróun í Kína sé að eiga jákvæðar viðræður við ráðamenn þar og sýna þeim virðingu. „Það er ekki hægt að sýna fólki sem brýtur mannréttindi virðingu," segir Sveinn. „Ólafur telur sig vera forseta allra Íslendinga. Hér er ákveðinn hópur sem á við geðsjúkdóma að stríða og ætti þar af leiðandi ekki möguleika á því að fara á leikana. Hvaða virðingu er verið að sýna þeim?" Sveinn vill að Ólafur og Þorgerður nýti tækifærið í ferðinni, og komi á framfæri mótmælum við valdhafa í Kína vegna mannréttindabrota þar í landi. Hann tekur fram að þessi sjónarmið séu hans eigin, en byggist á tilgangi og markmiðum Geðhjálpar. Stjórn félagsins hafi ekki ályktað um málið, en hann muni þó kalla eftir afstöðu hennar á næsta fundi.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira