Ole Gunnar er öðrum innblástur 1. ágúst 2008 20:30 AFP
Sir Alex Ferguson fór fögrum orðum um Ole Gunnar Solskjær í dag, daginn fyrir sérstakan heiðursleik til handa Norðmanninum markheppna. Manchester United mætir á morgun spænska liðinu Espanyol og þar mun Solskjær væntanlega koma við sögu í um 20 mínútur þar sem honum gefst tækifæri til að kveðja stuðningsmenn United. Hinn 35 ára gamli Solskjær er hetja í augum stuðningsmanna United og hans verður alltaf minnst sem mannsins sem skoraði sigurmarkið í frábærum úrslitaleik United og Bayern árið 1999 - árið sem liðið vann þrennuna. "Ole er innblástur fyrir knattspyrnumenn sem vilja eiga langan og gifturíkan feril. Hann hefur helgað sig starfi sínu og það er sjaldgæft að menn spili í meira en tíu ár með sama félaginu í nútímaknattspyrnu. Þegar stuðningsmennirnir hylla Ole í þessum leik, verður það ekki eingöngu til að þakka honum fyrir markið í Barcelona, heldur fyrir áralanga þjónustu hans og hollustu," sagði Ferguson. "Hann kom til okkar þegar hann var 23 ára gamall og þá hélt ég að hann væri 15 ára. Hann fékk að reyna sig með varaliðinu og eftir tvo leiki kom þjálfari varaliðsins til mín og sagði mér að þessi drengur yrði að fá tækifæri með aðalliðinu. Eftir það var aldrei aftur snúið og hann var í hópnum allar götur eftir það," sagði Ferguson og minntist líka markanna 11 sem hann skoraði á sínu síðasta tímabili, en þau töldu rækilega þegar liðið varð enskur meistari á ný.
Enski boltinn Mest lesið Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Danmörk - Portúgal 2-4 | Portúgal vann þrátt fyrir fjarveru Ronaldo Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Írland - Austurríki 2-2 | Svekkjandi jafntefli fyrir Heimi Fótbolti Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Handbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira