Ólafur settur í embætti í fjórða skipti 1. ágúst 2008 19:00
Ólafur Ragnar Grímsson sór embættiseið sem forseti Íslands í fjórða skipti í dag. Forsetinn hvatti þjóðina til bjartsýni þótt á móti blási í augnablikinu. Athöfnin var með mjög hefðbundnum hætti eins og vænta mátti. Lúðrasveit Reykjavíkur hóf að leika ættjarðarlög á Austurvelli klukkan þrjú. Klukkan hálf fjögur var gengið til Guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Smávegis óhapp varð þegar Dorrit forsetafrú steig út úr bifreið sinni við Alþingishúsið. Beltið hrundi þá af skautbúningi hennar og lá á jörðinni í þrem eða fjórum hlutum. Ekki missti forsetafrúin þó jafnvægi við þetta og beltinu var í snatri safnað saman. Það var svo aftur komið um mitti hennar þegar gengið var til kirkju. Að guðsþjónustu lokinni var gengið yfir í Alþingishúsið þar sem Ólafur Ragnar Grímsson sór embættiseið sinn. Í ávarpi sagði hann að þótt nú blási á móti í efnahagslífinu sé engin ástæða til þess að örvænta eða grípa í skyndi til örþrifaráða. Þjóðin sé betur undir það búin en áður að rétta úr kútnum. Íslendingar hafi áður siglt úfinn sjó. Forsetafrúin Dorrit Moussaieff var að vanda glæsileg. Hún klæddist skautbúningi sem var saumaður árið 1938. Hann saumaði Jakobína Thorarensen, annáluð hannyrðakona. Upphaflega var hann saumaður á Jósefínu Helgadóttur eiginkonu Skúla Guðmundssonar fyrrum alþingmanns, ráðherra og kaupfélagsstjóra í Húnavatnssýslu.
Mest lesið Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Erlent Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Erlent Stuðningsyfirlýsing Össurar eins og koss dauðans Innlent Þau fái heiðurslaun listamanna Innlent Óttast að fólk sleppi að kaupa lyf vegna minni greiðsluþátttöku Innlent Flúði lögregluna en reyndist allsgáð Innlent Gengst ekki við falsfréttum en viðurkennir að tímasetningar séu misvísandi Innlent Beitir sér ekki fyrir sveigjanlegri tilhögun fæðingarorlofs Innlent Föngum sleppt og viðskiptaþvingunum aflétt Erlent ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Erlent Fleiri fréttir Mikilvægt að geyma stafræn gögn innan lögsögunnar Bæjarskrifstofur fluttar: „Þetta húsnæði er barn síns tíma“ Óttast að fólk sleppi að kaupa lyf vegna minni greiðsluþátttöku Munu reyna að fá nýju virkjunarleyfi hnekkt Vara fólk við póstum og skilaboðum frá Grundarheimilunum Vara við póstum frá Grund og „jafnréttisþreyta“ Stuðningsyfirlýsing Össurar eins og koss dauðans Fjárlög, skattar og skipti á dánarbúum á laugardagsþingi Þau fái heiðurslaun listamanna Flúði lögregluna en reyndist allsgáð Mikilvægt að geyma stafræn gögn innan lögsögunnar Beitir sér ekki fyrir sveigjanlegri tilhögun fæðingarorlofs Afrituðu viðkvæmar heilsufarsupplýsingar úr kerfinu Kallar eftir samtali: Ekki spurning hvort heldur hvenær næsta slys verður Vill að allt verði gert til að ná bróður hans úr sprungunni Einn fluttur á slysadeild vegna brunans Vill finna bróður sinn „Þessar fréttir ollu mér og fleirum vanlíðan“ Bergþór með brjósklos og blæs á slúður Virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar endurnýjað Svandís stígur til hliðar Flugvél á leið til Egilsstaða snúið við yfir Hallormsstað Gengst ekki við falsfréttum en viðurkennir að tímasetningar séu misvísandi Sigmundur Davíð og Kemi Badenoch meðal gesta í boði Meloni Keyptu ekki skýringar um neyðarvörn í Mjóddinni Bakkaði á ofsahraða með lyfjakokteil í blóðinu Laufey Rún hætt störfum hjá Miðflokknum Sanna býður sig fram undir merkjum Vors til vinstri Styggur svanur í sundi handsamaður og skilað í næstu tjörn Viðreisn stundi hræðsluáróður í stað þess að ræða málin Sjá meira