Innlent

Geir: Ákvörðun Þórunnar hefur ekki áhrif á stjórnarsamstarfið

Geir H. Haarde, forsætisráðherra, segir ákvörðun umhverfisráðherra, um að meta skuli umhverfisáhrif álvers á Bakka og tengdra virkjana í sameiningu, hafa komið á óvart. Það hafi þó engin áhrif á ríkisstjórnarsamstarfið.

Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverfisráðherra, úrskurðaði í gær að heildarumhverfismat þurfi vegna fyrirhugaðra framkvæmda við álver á Bakka og tengdum virkjunum. Þar með felldi ráðherra úrskurð Skipulagsstofnunar úr gildi sem ekki taldi þörf á heildstæðu umhverfismati. Ákvörðunin hefur verið harðlega gagnrýnt í hópi sjálfstæðismanna og einnig framsóknarmanna.

Ekki náðist í formann Samfylkingar, iðnaðarráðherra eða umhverfisráðherra fyrir hádegisfréttir Stöðvar 2.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×