Innlent

Nokkur útköll en ekkert stórtjón í gær

Ekki er vitað til að neitt umtalsvert tjón hafi orðið í hlákunni í gærkvöldi. Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu sinnti nokkrum útköllum en í engu tilviki var um stórtjón að ræða.

Hvergi kom heldur til vandræða á vegum úti, þrátt fyrir flughálku víða um land. Nokkrir bílar runnu þó út af vegum, en enginn meiddist og tjón var lítið. Þótt ár og lækir bólgnuðu víða er ekki vitað til að flætt hafi yfir bakka eða tjón hlotist af. Almennt virðist veðrið hafa verið skárra en búist var við.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×