Hefur miklar áhyggjur af þróun löggæslumála Jón Hákon Halldórsson skrifar 16. júlí 2008 14:30 Dagur B. Eggertsson segir miðborgarþjóna ekki koma í stað lögreglunnar.
Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi segist lengi hafa haft áhyggjur af löggæslumálum í Reykjavík og viðrað þær. Greint hefur verið frá því í fjölmiðlum að einungis 14 lögreglumenn stóðu vaktina á höfuðborgarsvæðinu síðastliðið laugardagskvöld. „Það er sýnileg löggæsla sem virkar og það vita allir. Þannig að það er grafalvarlegt mál ef ekki er verið að beita þeim meðulum sem virka," segir Dagur. Hann segir að þegar 14 manns standi vakt sé það einungis um helmingurinn af því sem þurfi að vera. "Það er bara helmingur af því sem var þegar Reykjavík var miklu minni borg," segir Dagur. Hann bendir á að nú sé allt höfuðborgarsvæðið undir. Staða löggæslumála sé því grafalvarlegt mál sem þurfi að taka á strax, því framundan séu erilsömustu og erfiðustu helgar ársins. „Já og nei," segir Dagur þegar hann er spurður að því hvort miðborgarverðir, sem Reykjavíkurborg hefur nýlega ráðið í þjónustu sína, geti létt undir með lögreglunni. „Þeir eru svipaðir og borgarstarfsmenn sem unnu fyrir 10 árum við svipuð verkefni þegar verið var að leysa unglingavandamál í miðborginni," segir Dagur. Hann bendir þó að þeir komi í veg fyrir sýnilega þjónustu. „Vegna þess að það á enginn að hafa heimild til þess að grípa inn í mál eða handtaka fólk heldur en lögreglan," segir Dagur. Það sé því öfug þróun ef sveitafélög ráði til sín öryggisgæslu í stað þeirrar löggæslu sem þurfi að vera. Dagur bendir sérstaklega á að það skjóti skökku við að Embætti ríkislögreglustjóra sé stækkað og sérsveitin efld á sama tíma og lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sé í þessari stöðu.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira