Hlutabréf sálarinnar Atli Steinn Guðmundsson skrifar 3. október 2008 11:04 Verðbréfagúrúinn bróðir Nikanor. MYND/Reuters
Ekki er örgrannt um að bók Robins Sharma, Munkurinn sem seldi sportbílinn sinn, hafi haft einhver áhrif á lífsgæðaþyrsta Vesturlandabúa. Það minnir að minnsta kosti óneitanlega á söguþráð hennar þegar farsæll verðbréfamiðlari á Wall Street skiptir Armani-jakkafötunum og Gucci-skónum út fyrir sandala og kufl og gengur í Tsurnogorski-klaustrið sem er skammt frá Sofia, höfuðborg Búlgaríu. Þetta er Hristo Mishkov, 32 ára gamall Búlgari sem hefur yfirgefið Wall Street og snúið aftur til fósturjarðarinnar - sem munkur. Í Tsurnogorski-klaustrinu er lögð stund á stranga kaþólska reglu og öllum veraldlegum gæðum hafnað. „Sá sem neytir meira en þess sem hann hefur unnið sér inn sveltir einhvern annan," segir Mishkov sem gengur reyndar undir heitinu bróðir Nikanor í klaustrinu. Hann segir það réttlátt að fólk sem neytir meira en það á skilið fái skell annað slagið og átti sig á því að í lífinu verði menn að gefa og þiggja til jafns, annað skapi ójafnvægi. Allir geta orðið góðir verðbréfamiðlarar Nikanor mælir með því að fólk láti krukku með mold standa á borðinu hjá sér til að minna það stöðugt á hvert við stefnum öll og hvaða gæði það séu sem raunverulega skipti máli í lífinu, hin andlegu. „Allir geta orðið góðir verðbréfamiðlarar en heimurinn græðir sáralítið á því," segir munkurinn ráðagóði og bætir því við að leit mannkynsins að hamingju í hinu veraldlega færi því ekkert nema tómleikann. Bróðir Nikanor er þó ekki alveg frábitinn hinu veraldlega. Eina eign hans fyrir utan kufl og sandala er farsími hans. Þennan síma notar Nikanor til að komast í samband við fyrrum vinnufélaga sína á Wall Street og kaupa þar og selja hlutabréf. Ágóðann notar munkurinn til að kosta endurbyggingu Tsurnogorski-klaustursins sem var notað sem vinnubúðir á sovéttímabilinu og varð af þeim sökum fyrir tjóni.
Mest lesið Hvað er það versta sem þú hefur gert? Gagnrýni Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Lífið „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Bíó og sjónvarp Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Lífið Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Lífið Endurlífguðu Kilmer með gervigreind fyrir fornleifamynd Bíó og sjónvarp Hlustun á Bó snaraukist Tónlist Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Lífið Útför Björgvins opin almenningi Lífið Cruise tekur á loft í þriðja sinn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ Sjá meira