Innlent

Starfsfólk fær 120 þúsund króna launauppbót

Jónmundur Guðmarsson, bæjarstjóri í Seltjarnarnesbæ.
Jónmundur Guðmarsson, bæjarstjóri í Seltjarnarnesbæ.

Öllu starfsfólki Seltjarnarnesbæjar, að bæjarstjóra undanskildum, verður greidd 120.000 króna eingreiðsla þann 1. maí næstkomandi. Greiðslan miðast við að fólk sé í fullu starfi, en þeir sem eru í hlutastarfi fá greitt samkvæmt starfshlutfalli.

Í fréttatilkynningu frá Seltjarnarnesbæ er haft eftir Jónmundi Guðmarssyni að aðgerð þessi miði að því að tryggja stöðugleika í starfsmannahaldi bæjarins á óróleikatímum á vinnumarkaði.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×