Innlent

Lýsismenn segjast tilbúnir með mengunarbúnað

Frá Þorlákshöfn.
Frá Þorlákshöfn. MYND/Einar Elíasson

Lögmaður Lýsis kannar nú réttarstöðu þess með málshöfðun í huga vegna orða talsmanns íbúa í Þorlákshöfn sem mótmælt hafa því að fyrirtækið reki fiskhausaþurrkunarverksmiðju í bænum með tilheyrandi lyktarmengun.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Lýsi. Þar segir að forsvarsmaður undirskriftasöfnunar gegn fiskþurrkuninni hafi haft uppi gífuryrði í fjölmiðlum um Lýsi sem séu ósönn.

Þá segjast forsvarsmenn Lýsis harma það ástand sem skapast hafi í Þorlákshöfn. Lýsi hafi í eitt og hálft ár verið tilbúið með mengunarbúnað til þess að setja við fiskþurrkunina en ekki fengið leyfi frá bæjaryfirvöldum til að setja hann upp. „Erfitt er að draga aðrar ályktanir af þessari synjun en þær að bæjaryfirvöld vilji viðhalda óánægju íbúa Þorlákshafnar með starfsemi fiskþurrkunarinnar," segir í tilkynningunni.

Lýsi hafi sett búnað af þessari gerð upp við lifrarbræðslu sem fyrirtækið á í Þorlákshöfn árið 2006. Hann hafi gefið mjög góða raun. „Fullyrða má því að búnaðurinn sem Lýsi á tilbúinn muni koma fyllilega til móts við þær kröfur sem bæjarbúar gera," segir enn fremur í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×