Innlent

Tveir fíkniefnalögreglumenn á slysadeild eftir fólskulega árás

Tveir lögreglumenn úr fíkniefnadeild voru fluttir slasaðir með sjúkrabílum á slysadeild Landsspítalans og tveir til viðbótar þurftu að leita þar lækninga eftir fólskulega árás á þá við störf á Laugaveginum, laust upp úr klukkan eitt í nótt.

Einn þeirra er enn á sjúkrahúsinu, en hann hlaut meðal annars þungt höfuðhögg. Eftir að átökin hófust kölluðu lögreglumennirnir á liðsafla og var hópur lögreglumanna sendur á vettvang til að skakka leikinn.

Þrír karlmenn og ein kona voru handtekin, en talið er að árásarmennirnir hafi verið að minnstakosti fimm. Konunni hefur verið sleppt en karlarnir þrír eru enn í haldi.

Tveir þeirra, sem báðir eru af erlendu bergi brotnir, hafa áður komið við sögu lögreglu vegna ofbeldisverka, meðal annars vegna árásar á lögrelgumenn. Ekki liggur fyrir hver tildrög átakanna voru




Fleiri fréttir

Sjá meira


×