Innlent

Umferð hleypt á Kárahnjúkastíflu

Séð yfir Kárahnjúkavirkjun.
Séð yfir Kárahnjúkavirkjun.

Umferð almennings hefur verið leyfð um Kárahnjúkastíflu frá deginum í dag, 15. júlí til 15. ágúst næst komandi.

Fram kemur í fréttatilkynningu frá Landsvirkjun að mikill straumur gesta hefur verið í upplýsingamiðstöð Landsvirkjunar í Végarði í sumar til þess að kynna sér Kárahnjúkavirkjun og Fljótsdalsstöð.

Áður höfðu allt að 60 þúsund gestir komið þangað á byggingartíma virkjunarinnar. Framan af sumri var ferðamönnum leyft að fara yfir Kárahnjúkastíflu í hádeginu þegar aðstæður leyfðu.

,,Leiðin um Kárahnjúkastíflu tengir saman Vesturöræfi og Brúaröræfi og er ákjósanleg leið frá Austurlandi í Kverkfjöll, Herðubreiðarlindir og fleiri áhugaverða staði vestar á hálendinu. Bundið slitlag er að stíflunni frá Egilsstöðum og tekur sú ferð um einn og hálfan tíma en þegar lengra er haldið taka við fjallvegir sem ætlaðir eru jeppum og fjórhjóladrifsbílum," eins og segir í fréttatilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×