Innlent

Í gæsluvarðhald vegna lífshættulegrar árásar

Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manni sem grunaður er um að hafa lagt til annars manns með hnífi fyrir utan skemmtistað á Trygvagötu aðfaranótt laugardags.

Sá sem fyrir hnífnum varð hlaut áverka á hálsi og segir í læknisskýrslu að litlu hafi mátt muna að árásin hafi leitt til lífshættulegs ástands, örkumla eða jafnvel dauða.

Hnífurinn sem notaður var fannst í buxnavasa hins grunaða en hann neitar sök í málinu. Hann hefur við yfirheyrslu borið að hnífnum sem notaður var við árásina hafi verið komið fyrir í vasa sínum. Jafnvel af fórnarlambinu sjálfu.

Þessi framburður þykir fjarstæðukenndur og er það mat dómsins að miklar líkur séu á því að maðurinn hafi framið brot sem varðar allt að sextán ára fangelsisvist.

Hæstiréttur staðfesti því gæsluvarðhaldssúrskurðinn og stendur hann til 18 júlí.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×