Verklagsreglur ekki sem skyldi hjá íslenskum friðargæsluliðum Óli Tynes skrifar 26. ágúst 2008 15:12 Ingibjörg Sólrún kynnti niðurstöður álitsgerðar
Frumábyrgð á árásinni á íslenska friðargæsluliða í Kabúl í október 2004 liggur hjá þeim sem skipulögðu og gerðu árásina segir í álitsgerð sem samin var fyrir utanríkisráðuneytið. Árásin sem um ræðir var sjálfsmorðsárás. Tilræðismaður varpaði þrem handsprengjum að friðargæsluliðum sem voru í og við teppaverslun í hinu svokallaða Kjúklingastræti. Þrettán ára gömul stúlka og bandarísk kona fórust í árásinni sem og tilræðismaðurinn. Fjórir íslensku friðargæsluliðanna særðust sem og nokkrir Afganir. Það voru hæstaréttardómararnir Guðrún Erlendsdóttir og Haraldur Henrýsson sem unnu álitsgerðina fyrir ráðuneytið. Þar segir meðal annars að ekkert bendi til annars en að öryggisgæsla í ferðinni hafi verið óaðfinnanleg og að íslensku friðargæsluliðarnir hafi í einu og öllu brugðist rétt við. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra sagði á fundi með fréttamönnum að með þessari skýrslu væri ekki verið að leita að sökudólgum en ýmislegt hefði komið fram sem hægt væri að læra af. Til dæmis hafi það sýnt sig að verklagsreglur og boðleiðir bæði hjá ráðuneytinu og öðrum hafi ekki verið sem skildi. Til dæmis hafi friðargæsluliðar fengið misvísandi skilaboð frá yfirmönnum. Þannig sagði erlendur yfirmaður á Kabúl flugvelli íslensku friðargæsluliðunum að gott væri að vera á ferðinni um Kabúl og vera þannig sýnilegar gagnvart íbúum. Hins vegar taldi íslenskur yfirmaður öryggismála hjá friðargæslunni ferðin óráðlega. Þar sem að niðurstaða álitsgerðarinnar er sú að frumábyrgð sé hjá árásaramönnum munu íslensk stjórnvöld ekki greiða neinar bætur fyrir tjón sem erlendir aðilar urðu fyrir. Hvað Íslendingana varðar þá hefur tryggingarmálum við einn verið lokið. Þrír eru enn óbættir. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sagði að það væri óþolandi að ekki væri búið að ganga frá þeim málum eftir fjögur ár og að ráðuneytið muni aðstoða þremenningana við að leiða málið til lykta.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Fleiri fréttir Sinueldur í Grafarvogi Gagnrýnir vinnubrögð bæjarstjórnar Kópavogs harðlega Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Sjá meira