Ásgerður Jóna vonar að lausn finnist á húsnæðismálunum 26. ágúst 2008 16:44 Á annað þúsund manns njóta aðstoðar í hverjum mánuði.
Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjölskylduhjálparinnar, fagnar því að borgayfirvöld ætli sér að vinna að lausn á þeim rekstrarvanda sem samtökin búa við en þau hafa ekki getað greitt húsaleigu til borgarinnar sökum fjárskorts. Hún segist þó ætla að bíða og sjá til hvaða aðgerða verði gripið því hún hafi leitað eftir styrkjum frá borginni í nokkur ár án árangurs. „Ég er búinn að reyna núna í nokkur ár og alltaf fengið synjun án útskýringar," segir Ásgerður Jóna í samtali við Vísi. „En þetta eru jákvæð viðbrögð og við verðum bara að sjá hvert þetta leiðir." Hún segir að starfsemi Fjölskylduhjálparinnar standi og falli með því að lausn verði fundin á leigumálum samtakanna. „Leigan er 88 þúsund á mánuði og í staðinn getum við hjálpað á annað þúsund manns í hverjum mánuði. Þannig að margfeldisáhrifin fyrir borgina eru gífurleg. Þessum 88 þúsundum króna sem borgin þyrfti að sjá af er því mjög vel varið. Að sögn Ásgerðar Jónu koma um það bil 130 fjölskyldur í hverri viku til Fjölskylduhjálparinnar. „Við töldum það í fyrra og þá þáðu sextán þúsund munnar mat hjá okkur. Og ef þessum 88 þúsund krónum er ekki vel varið til þess að greiða niður þessa leigu þá veit ég ekki hvað. Ég held að það væri nú leitun að því í borgarkerfinu að svona vel væri farið með peninga." Ásgerður bætir því við að bókhald samtakanna sé opið og það geti allir kynnt sér sem það vilja. „Við erum eina líknarfélagið þar sem fylgiskjöl í bókhaldi liggja frammi." „Maður lifir bara í voninni um að borgaryfirvöld sjái ljósið og átti sig á því starfi sem verið er að vinna hér í Fjölskylduhjálpinni, " segir Ásgerður Jóna Flosadóttir.
Tengdar fréttir Borgin vill leysa vanda Fjölskylduhjálparinnar Reykjavíkurborg vinnur að lausn á rekstrarvanda Fjölskylduhjálparinnar og hyggst boða forsvarsmann hennar á sinn fund, að sögn Stellu Víðisdóttur, sviðsstjóra Velferðarsviðs. 26. ágúst 2008 11:36 Mest lesið Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Fleiri fréttir Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Sjá meira
Borgin vill leysa vanda Fjölskylduhjálparinnar Reykjavíkurborg vinnur að lausn á rekstrarvanda Fjölskylduhjálparinnar og hyggst boða forsvarsmann hennar á sinn fund, að sögn Stellu Víðisdóttur, sviðsstjóra Velferðarsviðs. 26. ágúst 2008 11:36