Sótti um pólitískt hæli með falsað vegabréf 12. ágúst 2008 16:44
Hæstiréttur staðfesti í dag að erlendur karlmaður skuli sæta gæsluvarðhaldi til 1. september á meðan lögregla rannsakar mál hans. Fram kemur í gæsluvarðhaldsúrskurðinum að maðurinn hafi komið til landsins 7. júlí og verið með falsað belgískt vegabréf. Hann var fjórum dögum síðar dæmdur í 30 daga fangelsi fyrir skjalafals. Manninum var tilkynnt tveimur vikum síðar að honum yrði vísað úr landi og gæti ekki komið aftur og óskaði hann þá eftir pólitísku hæli sem flóttamaður. Í úrskurðinum kemur fram að maðurinn hafi við rannsókn málsins gefið upp annað nafn og sagst vera Palestínumaður. Fram kemur í gögnum Ríkislögreglustjóra að maðurinn hafi meðal annars sótt um hæli í Noregi og Svíþjóð og að hann sé þekktur af tökuheitum víðs vegar. Þá segir í úrskurðinum að lögregla hafi tvívegis haft afskipti af manninum vegna ölvunar og óspekta. Annars vegar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar 2. ágúst og hins vegar 6. ágúst sl. á Miðbakkanum í Reykjavíkurhöfn. Leikur rökstuddur grunur á að maðurinn hafi gefið rangar upplýsingar um sig og að hann hafi sýnt af sér hegðun sem sem gefi til kynna að af honum geti stafað hætta. Taldi lögreglustjóri því nauðsynlegt að maðurinn sæti gæsluvarðhaldi á meðan mál hans eru til rannsóknar hjá lögreglu og Útlendingastofnun. Enn fremur hafa sýni af fingraförum mannsins verið send utan og samkvæmt svörum frá Interpol hefur hann ítrekað komið við sögu hjá lögreglu og útlendingayfirvöldum í nokkrum löndum undir nokkrum nöfnum, meðal annars sem líbískur borgari. Var hann eitt sinn fluttur af yfirvöldum í Þýskalandi til Líbíu. Þá hefur komið fram að hann sé kunnur af fíkniefnabrotum og hótunum.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Innlent Fleiri fréttir Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sjá meira