Jóhanna fær Barnamenningarverðlaunin 1. desember 2008 15:24 Kári Stefánsson afhendir Jóhönnu verðlaunin.
Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra hlýtur Barnamenningarverðlaun Velferðasjóðs barna í ár. Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar og stjórnarmaður í sjóðnum, afhenti Jóhönnu verðlaunin við hátíðlega athöfn í Iðnó í dag. Þá var einnig úthlutað styrkjum til málefna er varðar börn fyrir alls um 8 milljónir króna. Í tilkynningu segir að þetta sé í fjórða sinn sem Barnamenningarverðlaun Velferðarsjóðs barna eru veitt og í greinargerð frá fagráði sjóðsins kemur fram að Jóhanna hlýtur verðlaunin í ár fyrir framlag sitt til íslenskra barnafjölskyldna fyrr og nú. Jóhanna tók við veglegum verðlaunagrip úr silfri eftir Dýrfinnu Torfadóttur gullsmið. „Í dag var einnig úthlutað styrkjum úr styrktarsjóði Velferðasjóðs barna. Hjálparstarf kirkjunnar og Mæðrastyrksnefnd hlutu hvort um sig kr. 2.000.000 sem ætlað er að kaupa föt og jólaglaðning fyrir börn. Foreldrahús hlaut einnig styrk upp á kr. 2.000.000 en Foreldrahús vinnur með börnum og foreldrum sem hafa átt við erfiðleika að stríða, líkt og einelti eða fíkniefnaneyslu. Dyngjan, áfangaheimili fyrir konur sem eru að koma úr meðferð, hlaut kr. 1.000.000 í styrk og verkefnið Morgunhanar fékk styrk upp á kr. 300.000 en verkefninu er ætlað að vinna gegn félagslegri einangrun og slakri mætingu í grunnskóla. Þá fékk Félag lesblindra einnig styrk upp á kr. 300.000 en alls hefur sjóðurinn styrkt félagið um kr. 4.500.000 undanfarin ár," segir einnig. Ennfremur segir í tilkynningunni að frá því Velferðarsjóður barna var stofnaður af Íslenskri erfðagreiningu fyrir átta árum hefur sjóðurinn úthlutað meira en 450 milljónum króna til margvíslegra verkefna.
Mest lesið „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent Ósáttur við skilyrðin Erlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Konan komin í leitirnar Innlent Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum Innlent Fleiri fréttir „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Sjá meira