Skýrist á fimmtudag til hvaða aðgerða verður gripið 19. ágúst 2008 14:23 Gísli Marteinn Baldursson. MYND/Stefán
Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segist ekki ætla að ræða fyrirhugaðar sparnaðaraðgerðir hjá borginni á forsendum minnisblaðsins sem Ólafur F. Magnússon talaði um á blaðamannafundi fyrr í dag. Ólafur sagði frá því að hugmyndir væru uppi innan borgarkerfisins að draga saman launakostnað um átta prósent og minnka yfirvinnu borgarstarfsmanna. „Ég ætla ekkert að ræða þetta á forsendum einhvers minnisblaðs sem Ólafur er að veifa," segir Gísli Marteinn þegar Vísir náði sambandi við hann í Edinborg eftir að hafa ítrekað reynt að ná sambandi við aðra borgarfulltrúa flokksins sem eru staddir nær hringiðu borgarmálana í Reykjavík. „Það dylst hins vegar engum sem vinnur við borgarstjórnina núna að það eru erfiðir tímar framundan í efnahagsmálunum. Þau Hanna Birna Kristjánsdóttir og Óskar Bergsson hafa bæði bent á þetta undanfarna daga." Gísli segir ekki tímabært að fara nánar út í hvaða aðgerða verði gripið en að það komi í ljós á fimmtudaginn kemur þegar málefnasamningur nýs meirihluta verður kynntur. „Það er alveg ljóst að menn þurfa að vanda sig við fjármálastjórn borgarinnar á næstu misserum," segir Gísli Marteinn.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fleiri fréttir „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Sjá meira