Stórir marglyttuflákar við ströndina 19. ágúst 2008 12:47
Stórra marglyttufláka hefur orðið vart hér og þar út af ströndum landsins upp á síðkastið. Sums staðar eru þeir svo þéttir og þykkir að þeir lægja öldur. Eitraðar marglyttur hafa ekki enn borist hingað til lands, svo vitað sé, en þær hafa nú borist að Bretlandsströndum. Flákarnir geta verið að minnsta kosti 200 femetra stórir, eins og sáust í Hvalfirði fyrir helgi, og svo geta þeir verið margra laga þykkir. Fjöldinn í slíkum flákum skiptir jafnvel hundruðum þúsunda. Þá er fréttastofu Stöðvar 2 kunnugt um að marglyttuflákar hafi sést á stöðum þar sem þeir hafa ekki verið áður. Þegar bátum er siglt í gengum flákana er eins og sulta sé í skrúfuröstinni. Enginn sérfróður maður um marglyttur er tiltækur á Hafrannsóknastofnun þessa stundina en eftir því sem fréttastofan kemst næst hefur ekki verið gerð vísindaleg úttekt á útbreiðslu hennar hér við land. Það liggur því ekki óyggjandi fyrir að hún sé að færast í aukana. Algengasta tegundin hér við land nefnist árelía og getur sviðið undan henni. Önnur og sjaldgæfari tegund er enn verri, en eitruð afbrigði marglyttu, sem herja á ónæmiskerfi fólks, hafa ekki enn borist hingað frá suðlægari slóðum. Sú tegund er þó farin að gera sig heimakomna við Bretlandseyjar og samkvæmt því gæti hún allt eins ratað hingað.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira