Ríkisendurskoðun ráðalaus frammi fyrir framúrkeyrslu stofnana 15. apríl 2008 15:39 Sigurður Þórðarson ríkisendurskoðandi. MYND/GVA
Fjórðungur liða á fjárlögum var með halla í árslok 2007 samkvæmt skýrslu Ríkisendurskoðunar um framkvæmd fjárlaga í fyrra og ársáætlanir ársins 2008. Þar kemur fram að heildarumfang hallans hafi numið 5,8 milljörðum króna en hallinn var 3,4 milljarðar árið 2006 og hefur því aukist um 2,4 milljarða. Þá sýnir skýrslan enn fremur að um 70 prósent allra fjárlagaliða áttu ónýttar fjárheimildir í árslok 2007. Uppsafnaðar heimildir þeirra námu alls rúmum 21 milljarði króna samanborið við tæpa 20 milljarða í fyrra. Afgangurinn hefur því aukist um 1,2 milljarða. Tólf af þrettán stofnunum enn með halla Ríkisendurskoðun segir að þeim þrettán stofnunum sérstaklega var fjallað um í skýrslu um framkvæmd fjárlaga 2006 voru tólf enn með halla umfram fjögurra prósenta viðmið í lok síðasta árs. Fari útgjöld fram yfir það skal meta hvort áminNa eigi forstöðumenn á grundvelli laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. „Ljóst er því að ekki hefur verið tekið á rekstrarvanda þeirra. Þetta er algjörlega ólíðandi. Ríkisendurskoðun telur að síendurtekin brot gegn fjárreiðulögum og reglugerð um framkvæmd fjárlaga og aðgerðaleysi ráðuneyta vegna þeirra sýni að ábyrgðin er ekki að öllu leyti hjá forstöðumönnum stofnana," segir í skýrslunni. Þá hvetur stofnunin til þess að ákvæði um ábyrgð ráðuneyta á fjárreiðum ríkisstofnana verði gerð afdráttarlausari í gildandi lögum og reglum. „Umfang halla og uppsafnaðra fjárheimilda í árslok 2007 sýna að ekki hefur verið brugðist við síendurteknum ábendingum Ríkisendurskoðunar. Stofnunin getur eðli málsins samkvæmt ekki annað en komið sínu áliti á framfærimeð þeim hætti sem hér er gert." Stofnunin hefur þó óskað eftir því við Alþingi að hluti uppsafnaðra fjárheimilda hennar verði felldur niður. „Hvatt er til að ónýttar fjárheimildir annarra fjárlagaliða umfram 4% viðmiðið, sem ekki stendur til að nýta að fullu á árinu 2008, verði felldar niður í lokafjárlögum 2007. Að öðru leyti stendur stofnunin ráðalaus," segir í skýrslunni.
Mest lesið Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira