Enginn ágreiningur um að auka gjaldeyrisforða 15. apríl 2008 13:54 MYND/GVA
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra segir undirbúning hafinn að því að styrkja gjaldeyrisforða Seðlabankans en niðurstaða sé ekki fengin í það mál. Ráðherra segir ekki ágreining um málið við Seðlabankann en spurning sé hvenær og hvernig forðinn verði aukinn. Valgerður Sverrisdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins, spurði utanríkisráðherra út í efnahagsmál við upphaf þingfundar í dag. Sagði hún afar erfitt að átta sig á því hver áform stjórnvalda væru varðandi gjaldeyrisforða Seðlabankans. Ríkisstjórnarforkólfarnir hefðu haldið fund með Seðlabankanum 2. apríl og fundurinn hefði verið sagður mikilvægur, svo mikilvægur að forsætisráðherra og utanríkisráðherra hefðu þurft að taka einkaþotu til Búkarest á leiðtogafund NATO. Hins vegar hefði ekkert heyrst af niðurstöðum fundarins og 10. apríl hefði Davíð Oddsson seðlabankastjóri lýst því yfir að meginverkefni íslensku bankanna væri að bjarga sér sjálfir og að það kostaði mikið fé að halda stóran gjaldeyrisforða. Svo hefði nýverið birst viðtal við Ingibjörgu Sólrúnu í Berlingske Tidende þar sem hún hefði sagt að öllum bönkum yrði boðin aðstoð og að ríkisstjórnin væri tilbúin að styðja bankana beint með fjárframlögum úr ríkissjóði. Spurði Valgerður hvort ágreiningur væri á milli ríkisstjórnarflokkanna um aðgerðir eða á milli ríkisstjórnarinnar og Seðlabankans eða hvort tveggja. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra sagði að enginn ágreiningur væri um það í landinu að mikilvægt væri að bankarnir gætu leitað eftir lausafé ef þeir þyrftu. Seðlabankinn ætti að vera lánveitandi þeirra til þrautavara og gæti farið ýmsar leiðir í þeim efnum. Fram hefði komið að Seðlabankinn hefði verið að skoða lánalínur í erlendum bönkum og einnig að auka gjaldeyrisforðann. Verið væri að skoða aðgerðir en niðurstaða væri ekki komin í málin. Benti Ingibjörg Sólrún á að Seðlabankastjóri hefði lagt á það áherslu að þetta væri ekki spurning um nokkra daga. Bankarnir hefðu sagt að þeir væru vel fjármagnaðir til nokkurra mánaða. Aðstoð þyrfti hugsanlega að vera fyrir hendi síðar og að því ynnu menn núna. Þá sagði hún það hafa komið skýrt fram af hálfu hennar, Geirs H. Haarde forsætisráðherra og Davíðs Oddssonar seðlabankastjóra að mikilvægt væri að styrkja gjaldeyrisforðann en spurning væri hvenær og hvernig það yrði gert.
Mest lesið Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent Mikil spenna í veðurkortunum Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Innlent Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Innlent Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Erlent Fleiri fréttir Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í rafhlaupahjóli innandyra Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Sjá meira