Þunglyndi er dýr sjúkdómur Atli Steinn Guðmundsson skrifar 11. apríl 2008 13:37 Notkun þunglyndislyfja hefur aukist á Íslandi. „
Geðrofslyf eru fyrst og fremst til notkunar við geðklofa og geðrofi sem er þýðing á psychosis eða sturlun. Þau eru líka notuð í smáum skömmtum sem jafnvægislyf í viðhaldsmeðferð við geðhvarfasýki," segir Kristófer Þorleifsson, geðlæknir og formaður Geðlæknafélags Íslands, en Vísir birti í gær frétt um aukinn kostnað Tryggingastofnunar ríkisins við geðrofslyf og þunglyndislyf. „Margir sem haldnir eru geðklofasjúkdómi þurfa þunglyndislyf, menn verða oft daprir við þær aðstæður. Síðan eru geðrofslyfin oft notuð í smáum skömmtum sem kvíðalyf, t.d. hjá þeim sem varasamt er að gefa kvíðastillandi lyf vegna ávanahættu," sagði Kristófer enn fremur. Hann sagði þunglyndi mjög alvarlegan sjúkdóm sem bæði væri vangreindur og vanmeðhöndlaður en u.þ.b. 14 - 15% sjúklinga fengju rétta meðferð. Kristófer skýrði aukna notkun þunglyndislyfja með því að fólk væri almennt orðið betur meðvitað um að leita sér hjálpar við þunglyndi, ekki væri um sama feluleikinn að ræða og þegar geðsjúkdómar ættu í hlut. Eins væri þunglyndi nú mun betur greint og meðhöndlað en áður og aukaverkanir lyfjanna minni. Aukaverkanir minni „Aukaverkanir þessara nýju lyfja eru margfalt minni en gömlu lyfjanna. Fram til 1988 voru þunglyndislyf ekki gefin nema í svæsnustu tilfellum af því að þau höfðu svo miklar aukaverkanir. Þunglyndi er mjög dýr sjúkdómur og er í hópi þeirra tíu sjúkdóma sem valda mestum forföllum frá vinnu í heiminum," sagði Kristófer. Hann sagði að á hverjum tíma fyndi e.t.v. fimmtungur þjóðarinnar fyrir einhvers konar þunglyndiseinkennum, 6 - 8% karla og 10 - 12% kvenna. Að mati Kristófers nota um 10% þjóðarinnar þunglyndislyf. Batahorfur þunglyndissjúklings eru misjafnar eftir aldri hans og umfangi sjúkdómsins. „Ef fólk er komið yfir fertugt og hefur fengið tvö eða fleiri slæm þunglyndisköst leggur maður upp með ævilanga meðferð af því að það er svo mikil hætta á að þetta endurtaki sig og hvert nýtt þunglyndi verður erfiðara, þyngra og lengra og erfiðara að ná fólki upp úr því," sagði Kristófer og bætti því við að fólk leitaði yfirleitt til síns heimilislæknis eða beint til geðlæknis. „Fólk fer oft að missa svefn, treystir sér ekki í vinnu og hefur ekki styrk eða einbeitingu til að sinna daglegum verkum. Þegar fólk er orðið mjög fullorðið getur þetta lýst sér í ákveðinni tregðu, það hægir á allri líkamsstarfsemi og svo fylgir andleg tregða sem getur lýst sér eins og elliglöp í sumum tilfellum," sagði Kristófer að lokum.
Mest lesið Svarar engu um afleiðingar þess að flugmaðurinn komi til skaða Erlent Mímir hótaði að siga Vítisenglum á gagnrýninn borgara Erlent Snjóflóð skammt frá borginni líklega af mannavöldum Veður Óhapp um borð sem á sér engin fordæmi Erlent „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Innlent Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Innlent Önnur orrustuþota sögð hafa hrapað Erlent Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Innlent Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Innlent Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins Innlent Fleiri fréttir Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Snjóruðningstæki sat fast Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Brotist inn og gert sig heimakominn Ljósmyndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman Framsókn næði ekki inn á þing Þáttaskil í sögu Lýðskólans á Flateyri Innanlandsflugi aflýst vegna veðurs Hryðjuverkamálið á dagskrá Landsréttar í maí Umferðin gengur hægt en stóráfallalaust fyrir sig Íslendingur tók þátt í að gera tunglskotið að veruleika Oddvita sparkað af listanum og segir af sér formennsku Sendiherrum og skrifstofustjórum stokkað Ísland, Grænland og Færeyjar saman hefðu sterka samningsstöðu Kjartan Guðmundsson er látinn Sjálfstæðismenn og óháðir staðfesta listann í Vogum New York Times fjallar um íslenskar pylsur: Ekkert jafnist á við eina með öllu Stjórnstöð í Kópavogi sem líkist geimferðamiðstöð „Leyfið grínurunum aðeins að eiga sviðið í dag“ Vilja fá valdið aftur Hátt í sextíu prósent óánægð með störf borgarstjóra „Ég táraðist í flugvélinni“ Finna aukna fordóma: Syninum sagt að „drulla sér aftur upp í tré“ Yfirgaf Sjálfstæðisflokkinn og leiðir Miðflokkinn í Borgarbyggð Enn ein veðurviðvörunin yfirvofandi í nótt Sjá meira
„Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Innlent
„Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Innlent