Héraðsdómur klofnaði í nauðgunarmáli 11. apríl 2008 14:32 Héraðsdómur Norðurlands vestra. MYND/365
Héraðsdómur Norðurlands vestra sýknaði í dag karlmann af ákæru um nauðgun. Fjölskipaður dómur klofnaði í málinu. Manninum var gefið að sök að hafa í ágúst í fyrra reynt að hafa samræði við konuna og nýtt sér það að hún gat ekki spornað við verknaðinum sökum ölvunar og svefndrunga. Atvikið mun hafa átt sér stað á heimili konunnar og stóðu orð konunnar gegn orði mannsins sem neitaði sök. Að mati dómsins var framburður beggja staðfastur og trúverðugur. Konan hélt því fram að hún hefði ekki getað spornað gegn háttsemi mannsins og kallað eftir hjálp vegna hræðslu án þess þó að ákærði hefði verið ógnandi. Hún kvaðst ekki hafa verið með fullri meðvitund frá því að hún vaknaði við að ákærði var að klæða hana úr og þar til ákærði hætti athöfnum sínum heldur hefði hún dottið út á milli. Segir í álit meirihluta dómsins að það liggi fyrir að konan hafi að minnsta kosti ekki verið án meðvitundar allan þann tíma sem ákærði leitaði á hana. Út frá framburði vitna um ölvunarástand konunnar taldi dómurinn að miðað ætti við að konan hafi ekki verið ofurölvi þegar hún fór að sofa. Af þeim sökum væri ekki unnt að ætla að ákærði hefði getað átt von á því að hún svæfi ölvunarsvefni þegar hann fór inn í svefnherbergi til hennar. Að þessu virtu þótti ölvunarástand hennar og svefndrungi ekki geta skýrt það hvers vegna hún spornaði ekki við athöfnum ákærða og kallaði ekki eftir hjálp en bróðir hennar var í næsta herbergi. „Þá verður einnig að telja að svefndrungi og ölvun hafi ekki orðið til þess að hún skildi ekki þýðingu athafna ákærða," segir meirihlutinn. Taldi meirihlutinn að maðurinn hefði mátt ætla að konan hefði verið meðvituð um atlot hans og ekki verið þeim mótfallin. Lítil meðvitund konunnar leysir karlinn ekki undan ábyrgð Einn dómari skilaði séráliti og sagðist sammála meirihlutanum um að framburður konunnar væri mjög trúverðugur og sömuleiðis lýsingar hennar á ástandinu á meðan á kynmökunum stóð. Var dómarinn þeirrar skoðunar að þrátt fyrir það að konan hefði af og til á meðan á þessu stóð komist til meðvitundar leysti það ákærða ekki undan ábyrgð á framkomu sinni. Engin rök væru fyrir því að vefengja framburð konunnar um að hún hefði ekki getað kallað á bróður sinn vegna hræðslu eða ölvunar. Ákærði hefði sjálfur sagt fyrir dóminum að eftir að hann lagðist upp í rúm konunnar hefði hún hvorki opnað augun né heyrst frá henni hósti eða stuna svo hann myndi. Meðal annars út frá þessu taldi dómarinn að sakfella bæri manninn fyrir brotið.
Mest lesið Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Innlent Bein útsending: Almyrkvi á sólu Innlent Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Innlent Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Innlent Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Erlent Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Innlent „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Innlent Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Innlent Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Innlent Fleiri fréttir Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Gripinn með stolið kreditkort og handtekinn Hafa borið kennsl á hinn látna Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Kveikt á götulýsingu í sólmyrkva á stofnbrautum Líkfundur við Austurbæjarskóla Sjá meira