Efast um að Hæstaréttardómari geti unnið með rannsóknarnefndinni 28. nóvember 2008 10:51 Sigurður Líndal, prófessor emeritus við lagadeild Háskóla Íslands.
Sigurður Líndal, prófessor emeritus við lagadeild Háskóla Íslands, efast um að Hæstaréttardómari geti sinnt dómarastörfum á meðan að hann sitji í rannsóknarnefnd um bankahrunið. Fljótt á litið virðist starfið vera allt of umfangsmikið. Sigurður segir þó að Hæstaréttardómurum sé heimilt að vinna minniháttar störf samhliða dómarastörfum. Sigurður G. Guðjónsson hæstaréttarlögmaður telur að það sé stjórnarskrárbrot að skipa hæstaréttardómara í rannsóknarnefnd á aðdraganda og orsökum bankahrunsins eins og nýleg lög gera ráð fyrir. Í grein sem Sigurður Guðjónsson skrifar í Morgunblaðið í dag segir hann að með 61. grein stjórnarskrárinnar sé slegin skjaldborg um sjálfstæði og óhæði dómenda gagnvart öðrum handhöfum ríkisvaldsins. Geri þetta ákvæði ráð fyrir því að dómendur gegni aðeins dómstörfum en ekki öðrum störfum fyrir ríkið. Í lögum um rannsókn á bankahruninu er gert ráð fyrir að í rannsóknarnefndinni sitji Umboðsmaður Alþingis, einn Hæstaréttardómari og einn sérfræðingur skipaður af Alþingi. Sigurður Líndal situr í nefnd um dómarastörf, en Hæstaréttardómarar verða að fá leyfi frá nefndinni ætli þeir sér að gegna öðrum störfum samhliða. Hann hafði ekki lesið grein nafna síns en sagði þó að menn yrðu að fara varlega í þessum efnum. „Fljótt á litið myndi ég halda að þetta væri nú töluverð störf. Ég get ekki ímyndað mér að menn geti sinnt dómsstörfum og þessum samtímis. Það er þá maður sem þarf ekkert að sofa," segir Sigurður Líndal. Hann bendir þó á að viðkomandi dómari geti mögulega fengið leyfi frá Hæstarétti á meðan að hann gegndi störfum fyrir nefndina. Fyrir því séu vissulega fordæmi.
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Fleiri fréttir „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum Sjá meira