Ólafur Örn meðal þriggja sem komu til greina í starf ferðamálastjóra 8. janúar 2008 11:35 MYND/Hari
Ólafur Örn Haraldsson, fyrrverandi forstjóri Ratsjárstofnunar og forseti Ferðafélags Íslands, var einn þeirra þriggja sem komu helst til greina í starf ferðamálastjóra en ráðið var í stöðuna á dögunum. Ársæll Harðarson, forstöðumaður markaðssviðs Ferðamálastofu, sem einnig var í þriggja manna hópnum, íhugar að leita eftir rökstuðningi iðnaðarráðherra fyrir ráðningunni. Félag háskólamenntaðra ferðamálafræðinga hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem segir að ráðning nýs ferðamálastjóra sé á skjön við þróun íslenskrar ferðaþjónustu. Er þar gagnrýnt að ráðherra hafi ráðið líffræðinginn Ólöfu Ýrr Atladóttur til starfans en horft fram hjá umsækjendum með sérhæfða háskólamenntun á sviði ferðamála. Samkvæmt tilkynningu frá iðnaðarráðuneytinu á Ólöf Ýrr að baki fjölbreytt nám í stjórnsýslu- og þróunarmálum, náttúruvísindum og íslensku í Háskóla Íslands og University of East Anglia. „Ólöf Ýrr hefur góða þekkingu á alþjóðamálum og hefur lagt sérstaka áherslu á breytingastjórnun. Hún hefur reynslu á sviði ferðaþjónustu úr landvörslu og fararstjórn, og var einnig forstöðumaður Kviku, fræðagarðs við Mývatn," sagði enn fremur í tilkynningu ráðuneytisins þegar ráðið var til starfans. Þar kom einnig fram að ráðherra hefði valið Ólöfu Ýrr með tilliti til forystuhæfileika og markmiðs jafnréttislaga.Einn þeirra sem hafa sérhæfða menntun á sviði ferðamála og var auk Ólafar og Ólafs í þriggja manna hópi sem þótti standa best er Ársæll Harðarson, forstöðumaður markaðssviðs Ferðamálastofu. Hann sagði í samtali við Vísi í morgun að hann íhugaði að óska eftir rökstuðningi ráðherra vegna ráðningarinnar. Hann teldi sig hæfari en Ólöfu og samkvæmt stjórnsýlulögum ætti hann rétt á að óska eftir rökstuðningi.Hefur ekki ákveðið hvort hann óski eftir rökstuðningi ráðherraAthygli vekur að Ólafur Örn Haraldsson var ekki ráðinn til starfans enda hefur hann mikla reynslu af bæði ferðamálum og úr stjórnsýslunni. Ólafur er með meistarapróf í landfræði frá breskum háskóla og benti á í samtali við Vísi í morgun að hann hefði áratuga reynslu af ferðamálum. Hann hefði meðal annars unnið í nokkur ár hjá innanlandseild Útsýnar og komið að mikilli uppbygginu hjá Ferðafélagi Íslands. „Svo hef ég verið skálavörður og landvörður. Ég tók það ekki fram í umsókninni en ég hefði kannski átt að gera það," segir Ólafur.Ólafur gegndi auk þess þingmennsku fyrir Framsóknarflokkinn í átta ár og þar af var hann sex ár formaður umhverfisnefndar sem fjallaði allmikið um ferðamál að sögn Ólafs. Ólafur var forstjóri Ratsjárstofnunar í þrjú ár en hætti þar á síðasta ári í kjölfar þess að íslensk stjórnvöld tóku við rekstri stofnunarinnar.Aðspurður sagði Ólafur að hann hefði ekki hugleitt það hvort hann hygðist óska eftir rökstuðningi frá ráðherra vegna málsins. Umsækjendur hafa frest til þess til 14. janúar.
Mest lesið Brotist inn í Barnaloppuna Innlent „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Innlent Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Innlent Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Erlent Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Erlent Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Innlent „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Innlent Fleiri fréttir Það er jóker í spilinu Skoða hvort gerviaðgangar og grunsamlegar síður séu erlend öfl í dulbúningi Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Brotist inn í Barnaloppuna Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Íbúi í Kænugarði um stríðið og áhyggjur lögreglu af erlendum áhrifum á ESB-kosningu Fortíð og framtíð Íslands í Evrópu á Sprengisandi Mundaði stólinn og lamdi gesti „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Fjöldi ökumanna á von á kæru Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Þyrlan sækir slasaðan mann á Hestfjall Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Ósátt með fyrirhugaða sameiningu lögregluembætta Grindvískir krakkar sneru aftur á völlinn Lögnin komin á land en verður látin kyrr liggja „Önnur ríki með sérþarfir hafa miklu meira vægi í þeirri umræðu“ Bananastappa og hlaupbangsar á matseðlinum í tilraun tvö Velti allt á því hverjir mæti á kjörstað Allt hnífjafnt í nýjum þjóðarpúlsi og reynt aftur við Lagarfljót Hringvegurinn lokaður í gegnum Borgarnes annað kvöld Löng röð í öryggisleitina þriðja daginn í röð „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Leituðu manns sem átti að vera vopnaður rafbyssu Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina „Klukkan tifar“ Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Sjá meira