Tíu mánaða fangelsi fyrir árás með straujárni 8. janúar 2008 10:03
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt mann í tíu mánaða fangelsi fyrir stórfelllda líkamsárás með því að hafa slegið annan mann ítrekað í höfuðið með straubolta og fleiri hlutum. Við þetta fékk fórnarlambið mar á heila, heilahristing, tvo skurði á höfði, 7-8 stórar markúlur á höfði, bólgur og mar á hægra auga. Þá brotnuðu þrjár tennur og sex losnuðu. Árásin átti sér stað í húsi í Grafarvogi í mars árið 2006 og þegar lögregla kom á vettvang var árásarmaðurinn á bak og burt. Út frá upplýsingum vitna var maðurinn hins vegar handtekinn samdægurs og neitaði hann sök í fyrstu. Eftir að tveir menn höfðu viðurkennt að hafa verið með árásarmanninum í för þegar árásin var gerð viðurkenndi hann að hafa slegið fórnarlamb sitt í höfuðið með straubolta. Sagðist hann hafa gert það í sjálfsvörn þar sem fórnarlambið hefði slegið til hans með brotinni flösku. Þá bar hann því við að fórnarlambið hefði stuðlað að því að systir hans hefði ánetjast fíkniefnum. Út frá játningu mannsins var hann sakfelldur en hann hafði nokkrum sinnum áður komist í kast við lögin. Segir í dómnum að árás ákærða hafi verið ofsafengin og telja verði að hending ein hafi ráðið því að árásin hafi ekki leitt til alvarlegra líkamsmeiðsla og jafnvel varanlegra örkumla fyrir kæranda. „Af hálfu ákærða hefur því verið haldið fram að tilefni árásarinnar hafi verið það að kærandi hafi stuðlað að því að systir ákærða hafi ánetjast fíkniefnum og þegar þeir hafi hist umrætt sinn hafi brotist út hjá ákærða skyndileg og sjúkleg ofsareiði, sem ákærða hætti til að fá samkvæmt fyrirliggjandi umsögnum sérfræðinga. Ekkert liggur þó fyrir í málinu um að framangreind fullyrðing um tilefni árásarinnar hafi átt við rök að styðjast. Verður ekki til þessa litið við ákvörðun refsingar né fallist á að geðhagir ákærða geti afsakað gerðir hans með einhverjum hætti," segir í dómnum. Auk tíu mánaða fangelsis var maðurinn dæmdur til að greiða fórnarlambi sínu um 320 þúsund í skaðabætur auk rúmlega 900 þúsund króna í sakarkostnað.
Mest lesið Brotist inn í Barnaloppuna Innlent „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Innlent Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Innlent Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Erlent Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Erlent Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Innlent „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Innlent Fleiri fréttir Það er jóker í spilinu Skoða hvort gerviaðgangar og grunsamlegar síður séu erlend öfl í dulbúningi Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Brotist inn í Barnaloppuna Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Íbúi í Kænugarði um stríðið og áhyggjur lögreglu af erlendum áhrifum á ESB-kosningu Fortíð og framtíð Íslands í Evrópu á Sprengisandi Mundaði stólinn og lamdi gesti „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Fjöldi ökumanna á von á kæru Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Þyrlan sækir slasaðan mann á Hestfjall Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Ósátt með fyrirhugaða sameiningu lögregluembætta Grindvískir krakkar sneru aftur á völlinn Lögnin komin á land en verður látin kyrr liggja „Önnur ríki með sérþarfir hafa miklu meira vægi í þeirri umræðu“ Bananastappa og hlaupbangsar á matseðlinum í tilraun tvö Velti allt á því hverjir mæti á kjörstað Allt hnífjafnt í nýjum þjóðarpúlsi og reynt aftur við Lagarfljót Hringvegurinn lokaður í gegnum Borgarnes annað kvöld Löng röð í öryggisleitina þriðja daginn í röð „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Leituðu manns sem átti að vera vopnaður rafbyssu Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina „Klukkan tifar“ Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Sjá meira