Algjör handarbaksvinna 21. desember 2008 04:00 Loftur Jóhannsson „
Þetta er algjör handarbaksvinna,“ segir Loftur Jóhannsson, formaður Félags íslenskra flugumferðarstjóra, FÍF. Flugumferðarstjórar hjá Flugmálastjórn Keflavíkurflugvallar fengu í september bréf um að störf þeirra yrðu lögð niður og Flugstoðir ohf. tækju við ráðningarsamningi þeirra 1. janúar 2009. Kristján L. Möller samgönguráðherra tilkynnti á föstudag að ekkert yrði af fyrirhuguðum flutningi um áramótin heldur tækju þeir við starfi í nýju opinberu hlutafélagi Keflavíkurflugvallar ohf. sem tekur við rekstri Flugmálastjórnar Keflavíkurflugvallar. Loftur segir að flugumferðarstjórum hafi ekki verið tilkynnt þetta sjálfum. „Það fyrsta sem við sáum um þetta var frétt á mbl.is á föstudaginn,“ segir Loftur, en FÍF hefur enn ekki borist formleg tilkynning þess efnis. Samgönguráðherra hefur heldur ekki falast eftir fundum við félagið. Stjórn FÍF sendi frá sér tilkynningu í gær þar sem segir að stjórnin líti svo á að flugumferðar-stjórarnir hafi verið ráðnir til Flugstoða og verði þar starfsmenn frá og með 1. janúar 2009, en ekki starfsmenn Keflavíkurflugvallar ohf. „Það getur vel verið að menn séu tilbúnir að fara til Keflavíkurflugvallar ohf. en það yrði ekki nema samsvarandi samningar yrðu gerðir og gerðir voru við Flugstoðir í janúar 2007,“ segir Loftur. Ekki náðist í Kristján L. Möller vegna málsins. - vsp flugumferðarstjórar Gagnrýna vinnubrögð samgönguráðherra sem hefur ráðið þá og afráðið. fréttablaðið/heiða
Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Innlent Fleiri fréttir Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Alþjóðlegur sérfræðingur til liðs við Eyjagöng Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í október Vegavinna á Reykjanesbraut vestan Straumsvíkur Sjá meira