Innlent

Vilja selja sendiherrabústaði

Í breytingartillögum meirihluta fjárlaganefndar við fjárlagafrumvarp næsta árs er meðal annars lagt til að veitt verði heimild til að selja sendiherrabústaði Íslands í New York, Washington, London og Ósló.

Leggur meirihlutinn til að hluta söluverðsins verði varið til að kaupa eða leigja annað hentugra húsnæði fyrir sendiherra í borgunum. Tillögu þessa efnis var dreift á Alþingi síðdegis í gær en þriðja og síðasta umræða um fjárlögin fer fram á mánudaginn. Þingfundur hefst klukkan 9.30 og eru umræður um fjárlög annað mál á dagskrá fundarins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×